Bestu kynlífsráð karlmanna

Venjulegir karlmenn hafa sitthvað að segja um hvernig á að …
Venjulegir karlmenn hafa sitthvað að segja um hvernig á að slá í gegn í bólinu. mbl.is/Thinkstockphotos

Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox hefur talað við margt fólk um hvað virkar og hvað virkar ekki í kynlífi og ástarsamböndum. Cox deildi á dögunum bestu ráðunum sem hún hefur fengið frá venjulegu fólki sem stundar kynlíf á vef Daily Mail. Hér má finna bestu ráðin sem Cox hefur fengið frá karlmönnum.

Ert þú með þetta á hreinu í bólinu eða ert þú kannski að missa af frábærum ráðum sem gera kynlífið betra?

Góð munnmök

Cox mælir með ráði frá manni sem dó ekki ráðalaus þegar hann veitti konu munnmök. Mælti hann með því þegar konum eru veitt munnmök að hreyfa höfuðið til hliðar og upp og niður í stað þess hreyfa tunguna sjálfa. Einnig er hægt að sleppa því að hreyfa tunguna og fá konuna til að hreyfa sig. 

Gagnrýni

Einn kærasti leit svo á að þegar kærastan bað um meira af einhverju eða minna væri hún að gagnrýna hann. Í dag veit hann að hún var bara að leiðbeina honum til þess að gera kynlífið betra.

Maki með svipaða kynhvöt

Ef þú vilt ekki þurfa að rífast um kynlíf er gott að velja sér maka með kynhvöt á svipuðu róli og þú. Þetta góða frá karlmanni þykir Cox algjör snilld. 

Augnsamband í munnmökum

Einn maður segir að lykillinn að frábærum munnmökum sé augnsamband. Cox virðist sammála því að fólk horfi í augun á mönnum þegar það veitir þeim munnmök. 

Ekki vera annars hugar

Núvitund skiptir miklu máli í kynlífi. Einn maður segir það ekki fara fram hjá honum þegar einhver sem hann er að sofa hjá er að hugsa um eitthvað allt annað. 

Ekki taka því illa þegar bólfélaginn gefur þér leiðbeiningar.
Ekki taka því illa þegar bólfélaginn gefur þér leiðbeiningar. mbl.is/Thinkstockphotos

Kynlífsleikföng

Kynlífssérfræðingurinn mælti með ráði sem snýr að kynlífsleikföngum, titrurum nánar tiltekið. Einn maður tók það skýrt fram að titrarar ógna karlmönnum ekki. Segist hann elska að horfa á kærustuna nota titrara. 

Mjaðmahringir

Í stað þess að fara inn og út hreyfir einn ágætur maður mjaðmirnar í hringi. Segir hann konur vera hrifnar af þessari hreyfingu. Finnst honum líklegt að hann nái örva snípinn betur á þennan hátt. Cox sér greinilega ástæðu til þess að mæla með þessu ráði sem maðurinn segir að sýni konum að hann sé líka að hugsa um fullnægingu þeirra. 

Læsa hurðinni

Einn karlmaður mælir með því að foreldrar læsi hurðinni þegar þeir stunda kynlíf. Er það fyrst og fremst barnanna vegna en hann heldur því fram að ekkert barn vilji sjá foreldra sína stunda kynlíf. 

Skapandi notkun á kynlífsleikföngum

Einn maður mælir með að hugsa út fyrir kassann þegar kemur að hjálpartækjum ástarlífsins. Mælir hann til dæmis með því að fólk haldi titrara upp við kinnina meðan á munnmökum stendur. 

Eldmóður

Ef þú heldur að það skipti öllu máli að vera með góða bóltækni ertu á villigötum. Að minnsta kosti mælir Cox með ráði frá manni sem segir að það að vera fullur af ákafa skipti meira en að vera góður í bólinu. Hann segir að flestir menn séu ánægðir ef bólfélagar þeirra njóta sín. 

Spegill

Einn maður mælir sérstaklega með því að vera í hundastellingunni fyrir framan spegil. Þannig geti fólk horft á allt sem er í gangi og horfst í augu þegar og ef það fær fullnægingu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál