Íslensk kona heldur látlaust framhjá maka sínum og leitar ráða

Íslensk kona heldur framhjá kærasta sínum og leitar ráða.
Íslensk kona heldur framhjá kærasta sínum og leitar ráða.

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá konu sem heldur framhjá manni sínum með öðrum sem hún segist vera ástfangin af. Hún biður Valdimar um svör um hvað hún eigi að gera. 

Sæll Valdimar.

Ég hef um nokkurt skeið haldið framhjá sambýlismanni mínum til margra ára með öðrum manni. Þeir tveir eru eins ólíkir og hægt er að hugsa sér. Maki minn er besti vinur minn en við erum eins og systkini, ekki par, ég elska hann eins og fjölskyldumeðlim, ekki eins og lífsförunaut. Ég er hins vegar hugfangin af hinum manninum og elska hann, hann hefur vakið innra með mér nýja sýn á lífið, m.a. langar mig að eignast barn með honum, en það hef ég ekki viljað hingað til.

Ég hugsa um það á hverjum degi hvað þetta er vont og óheilbrigt og ég hef í langan tíma reynt að byggja mig upp til að vinna úr þessu, taka ákvörðun og axla ábyrgð á gjörðum mínum og tilfinningum. Það er hins vegar alveg ofboðslega erfitt. Ég get ekki hugsað mér að særa besta vin minn. Ég get ekki hugsað mér að lifa án mannsins sem ég er ástfangin af. Ég særi sjálfa mig svo mikið með þessu öllu að suma daga næ ég vart andanum. Ég upplifi gríðarlega streitu, kvíðaköst, minnisleysi, líkamleg einkenni og doða og oft óska ég þess að hverfa bara af yfirborði jarðar því ég sé enga leið út. Það er mér erfitt að skrifa þér og biðja um ráð því mér finnst ég ekki eiga neitt gott skilið.

Stundum líður mér eins og ég verði að fórna mér fyrir lífið eins og það er. Láta hlutina ganga sinn vanagang, að það sé hættulegt að leyfa mér að upplifa ástina. Að ganga út úr því sem ég þekki og yfir í óvissuna, að opna hjarta mitt og byrja upp á nýtt, að leyfa mér að taka ákvörðun ein og óstudd og lifa með afleiðingunum. Ég glími við svo mikið samviskubit suma daga gagnvart báðum þessum einstaklingum að ég á erfitt með að sjá hvernig ég geti átt það skilið að halda áfram og upplifa ástina.

Þakklæti til þín ef þú sérð þér fært að svara mér. Kv. X

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu.
Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu. mbl.is/Árni Sæberg

Góðan daginn X og takk fyrir að hafa samband.

Eitt af því sem reynir mest á fólk sem starfar við ráðgjöf er að dæma ekki aðra og gera sitt besta til þess að setja sig í spor þess sem um ræðir og nálgast málið þaðan. Ég nefni þetta af því að margir myndu eflaust fussa og sveia yfir því að þú skulir ekki gjöra svo vel að hætta annaðhvort strax að stunda þennan óheiðarleika og slíta öllum samskiptum við viðhaldið, eða að gera það rétta gagnvart núverandi manni þínum og skilja við hann. Ég hins vegar vil ekki fussa og sveia en að öðru leyti eru skilaboðin mín til þín alveg þau sömu.

Stundum er sagt að maður geti ekki bæði átt kökuna og borðað hana. Vanlíðanin sem þú ert að upplifa er algjörlega óþörf og þú ein berð ábyrgð á henni. Ég mæli eindregið með því að þú gangist við því sem er að kvelja þig og sýnir manninum þínum þá virðingu að annaðhvort hætta að halda framhjá honum eða skilja við hann, nema hvort tveggja sé. Þú segist óttast að særa þinn besta vin, en þú ert í raun nú þegar að því þar sem maður getur ekki verið heilshugar í sambandi á meðan maður er að halda framhjá. Hann á skilið að eiga konu sem elskar hann af öllu hjarta. Það er ákveðin meðvirkni að hafa áhyggjur af því að aðrir fullorðnir einstaklingar geti ekki axlað ábyrgð á sínum eigin tilfinningum, það er ekki þitt hlutverk að koma í veg fyrir það hjá honum. Ég mæli með því að þú leitir faglegrar aðstoðar til þess að takast á við þessar erfiðu tilfinningar sem þú ert að upplifa og fáir stuðning við að stíga skrefin sem þú þarft að taka. Þennan plástur er best að rífa af svo þú þurfir ekki að líða þessa kvöl. Það er án efa minni sársauki en sá sem þú upplifir núna.

Gangi þér sem allra best.

Kær kveðja,

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Valdimar spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál