Ert þú að fara að fá Lindu-verðlaunin í ár?

Linda Sigríður Baldvinsdóttir, samskiptaráðgjafi og markþjálfi hjá Manngildi.
Linda Sigríður Baldvinsdóttir, samskiptaráðgjafi og markþjálfi hjá Manngildi. mbl.is/Árni Sæberg

„Að undanförnu hef ég séð alls konar myndbönd frá verðlaunaafhendingum í hinum ýmsu flokkum og allt gott um það að segja, en hér í þessum litla pistli langar mig að nefna þá sem standa fremstir á mínum verðlaunapalli þegar ég lít yfir svið lífsins,“ segir Linda Sigríður Baldvinsdóttir, samskiptaráðgjafi og markþjálfi, í sínum nýjasta pistli: 

Flokkarnir eru eftirfarandi og eru veitt verðlaun fyrir eftirtalin atriði:

  • Að fara fram úr rúminu á hverjum degi og halda lífinu áfram eftir missi ástvinar.
  • Að taka hverjum degi eins og hann kemur fyrir þrátt fyrir erfið veikindi, jafnvel erfiðar aðgerðir og lyfjagjafir tengdar þeim.
  • Að halda áfram með lífið eftir skilnað — það á einnig við um börnin sem þannig missa öryggi sitt og lífið eins og þau þekkja það.
  • Að horfast í augu við atvinnumissi og eignamissi en gefast þó ekki upp.
  • Að sinna þeim sem veikir eru andlega og eða líkamlega (starfsfólk heilbrigðiskerfisins fær extra verðlaun fyrir alúð sína og þrautseigju þrátt fyrir léleg laun og aðstöðu).
  • Að sinna börnum landsins og kenna þeim á lífið (foreldrar, ömmur og afar, kennarar á öllum stigum og þorpið allt).
  • Að mæta í skólann eða vinnuna þrátt fyrir ofbeldi sem felst í athugasemdum um útlit, persónu eða getu (einelti).
  • Að þola einmanaleika og félagslega einangrun sem okkar nútímasamfélag býður stundum upp á.
  • Að taka líf sitt í gegn á hinum ýmsu sviðum og umbreyta því til hins betra.
  • Að bíta á jaxlinn og biðja um hjálp eða aðstoð þegar þess er þörf.
  • Að standa með sér og leyfa ekki annað en góða framkomu gagnvart sér.
  • Að halda áfram af þrautseigju að koma þekkingu og færni á framfæri þrátt fyrir mörg nei á leiðinni.
  • Að sinna og halda saman stórfjölskyldunni.
  • Að létta þeim lífið sem erfitt eiga með því að útvega það sem vantar.
  • Að láta sér annt um jörðina og samfélag okkar allra og sitja ekki aðgerðalaus hjá.
  • Að fara gegn fjöldanum eða pöpulismanum og segja það sem segja þarf til að samfélag okkar verði betra.
  • Að vera óöruggur og veikur aldraður einbúi sem fær ekki inni á stofnun þrátt fyrir eindreginn vilja þar að lútandi en gera þó sitt besta til að lifa af og bjarga sér.
  • Að samþykkja einstaklinga þó að þeir eigi sér ólíkan menningargrunn,lífssýn og sögu, og fyrir að mæta þeim á jöfnum grunni.
  • Að leggja líf sitt og limi í hættu til að bjarga öðrum.
  • Að takast á við ellikerlingu og dauðann af æðruleysi.
  • Að vera góð manneskja og sýna vinsemd og virðingu.
  • Að....

Þetta eru þeir einstaklingar sem á mínum verðlaunapalli standa og fá virtual Linduverðlaunin í ár og öll hin árin einnig.

Öllum öðrum hvunndagshetjum þessa lands (ég er nefnilega örugglega að gleyma einhverjum) óska ég einnig innilega til hamingju, þið eruð allan tímann tilnefndir sigurvegarar og standið í fremstu röð manna í mínum huga.

Takk fyrir ómetanlegt framlag ykkar og kennslu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál