Ástin er ekki bara á pöbbnum, nú er tíminn til þess að færa leitina á netið. Margar stjörnur hafa gert heiðarlega tilraun til þess að finna ástina á netinu, á samfélagsmiðlum eða með hjálp stefnumótaforrita. Sumar hafa gengið í hjónaband og eignast börn eftir að ástin dúkkaði upp á netinu.
Mandy Moore
Leik- og söngkonan kynntist eiginmanni sínum, Taylor Goldsmith, á Instagram. Hún birti mynd af plötu Goldsmiths og hljómsveit hans og í kjölfarið sendi hann henni skilaboð.
Sarah Hyland
Modern Family-stjarnan kynntist unnusta sínum, Bachelorette-stjörnunni Wells Adams, á netinu. Þau byrjuðu að daðra í netheimum áður en þau hittust í raunheimum.
Lizzo
Söngkonan prófaði stefnumótaforritið Raya. Hún segist hafa reynt að máta sig við tónlistarmanninn John Mayer en hann sýndi engan áhuga.
Rebel Wilson
Leikkonan greindi eitt sinn frá því að hún notaði mikið stefnumótaforritið Raya. Hún er ekki á því þegar hún er að hitta einhvern en inn á milli notar hún það. Ekki fylgdi sögunni hvort hún hefði dottið í lukkupottinn með hjálp forritsins. Hún mælir með stefnumótaforriti.
Ricky Martin
Tónlistarmaðurinn Ricky Martin kynntist eiginmanni sínum Jwan Yosef í gegnum Instagram.
Sharon Stone
Leikkonan notaði stefnumótaforritið Bumble. Hún hefur lítið tjáð sig um hversu vel henni gekk í ástalífinu en henni gekk í fyrstu illa að nota stefnumótaforritið þar sem margir héldu að aðgangur hennar væri plat. Að lokum fór svo að Bumble eyddi aðgangi hennar. Hún fékk seinna afsökun frá fyrirtækinu og gat haldið áfram að leita að ástinni.
Laverne Cox
Leikkonan kynntist ónefndum fyrrverandi kærasta á Tinder. Þegar þau hættu saman fór hún aftur á Tinder enda kunni hún vel við forritið.