Ertu týpan sem narssistar laðast að?

Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi.
Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi. mbl.is/Árni Sæberg

„Það eru fjórar persónutýpur sem narssistar hafa tilhneigingu til að laðast að, samkvæmt sálfræðingnum Karen Arluck:

Í fyrsta lagi eru það aðilar sem hafa áhrif og völd. Þeir sem eiga farsælan feril, eru fremstir í flokki í sínum áhugamálum, eru gæddir miklum hæfileikum hafa gott tengslanet og eða eiga valdamikla fjölskyldu.

Þeir leitast eftir þeim sem upphefja þá, dást að og kveikja tilfinningar sem gefur narsistanum aukaboost þannig að honum líði vel með sjálfan sig, og ekki er verra ef viðkomandi er það vel þekktur eða vel kynntur að hann geti „stækkað“  með því einu að umgangast þannig manneskju.

Svo eru það týpurnar sem þekkja ekki eigin tilfinningar og eru þá líklegri til að horfa framhjá göllum narsisstanna og er ólíklegri til að fara að yfirgefa þá..

Það er einnig algengt að þeir setji manneskjuna á stall þar sem hún trónir án allra galla og dvelur í fullkomnum í augum þeirra en þeir verða fyrir miklum vonbrigðum þegar þeir sjá að auðvitað er manneskjan jafn brokkgeng og við erum öll. Þá er sambandið í hættu því að þeir verða mjög óánægðir með sambandið og makann þannig að þeir eru líklega almennt óstöðugir í tilfinningasamböndum sínum,“ segir Linda Sigríður Baldvinsdóttir markþjálfi hjá Manngildi í sínum nýjasta pistli: 

Ef við setjum þær týpur sem þeir virðast laðast helst að sögn þeirra sérfræðinga sem hafa kynnt sér þetta málefni í þaula og setjum upp lista þá eru það eftirfarandi týpur sem tróna efstar þar.

  •  Sterkar valdamiklar konur/menn eða A týpurnar sem eru með allt á hreinu eru ögrandi verkefni fyrir þá og fátt veitir þeim meiri ánægju en að geta brotið smátt og smátt niður einstaklinga sem eru sterkir.
  •  Konur/menn með mikla samkennd (Empath). Narssistarnir þarfnast einhvers sem getur annast um þá og veitt þeim allan þann líkamlega og tilfinningalega stuðning sem þeir þarfnast (en gleymdu því að þú fáir þann stuðning á móti) og það lúkkar líka vel út í frá fyrir þá að hafa kærleiksríka ásýnd makans sér til stuðnings.
  •  Konur/menn með lágt sjálfsmat. Þessum aðilum er auðvelt að stjórna og móta þá í það far sem hentar narsisstanum best og þarna er einnig auðvelt að taka út reiðiköstin sem þeir fá þegar hlutirnir ganga ekki alveg upp eftir þeirra höfði, eða þar sem þeir láta ljót orð falla án þess að eiga það á hættu að aðilinn fari. Sá sem hefur lágt sjálfsmat dvelur lengur í aðstæðum sem eru honum skaðlegar oft vegna þess að þeir telja að möguleikar þeirra á því að fá betra samband séu ekki miklar sem aftur hefur áhrif á ákvarðanatöku þeirra um sambandið og framtíð þess.
  •  Trygglyndar konur/menn. Trygglyndið er narssistanum nauðsynlegt (frá makanum en ekkert sérstaklega frá þeim sjálfum) því að þeir vita innst inni að þeir eru ekki þeir auðveldustu í sambúð með þá skapgerð sem þeir hafa. Brjáluð reiðiköstin, lygarnar og þvættingurinn sem makinn þarf að upplifa eru þessleg að það þarf mjög svo tryggan einstakling til að halda út samband með þeim, en það trygglyndi sem þannig samband krefst er öllum óheilbrigt og skaðlegt.
  •  Þeir sem eiga erfitt með að setja mörk fyrir líf sitt og standa með sjálfum sér. Narssistarnir skilja ekki mörk og reglur einstaklinga né þjóðfélagsins í heild og finnst að þeirra eigin reglur eigi að gilda fyrir alla. Þannig að ef þú átt erfitt með að setja mörk þá finnst þeim bara frábært að setja mörkin eða markaleysið fyrir þig og stjórna með því tilveru þinni og tilfinningum.
  •  Þeir sem bera af í glæsileika. Þetta snýst allt um að lúkka vel í augunum á öðrum sjáðu til, og eftir því sem þú ert glæsilegri þeim betur líta þeir út í samfélaginu með þig sér við hlið.
  •  Þeir sem eru á framabraut og eða eru sýnilegir í þjóðfélaginu og eru með réttu tengingarnar. Fátt gleður narssistann meira en það að hafa völd og þekkja rétta fólkið sem getur svo ýtt þeim upp á þann virðingasess sem þeir telja sig svo sannarlega eiga tilkall til óháð getu og hæfileikum.
  •  Konur/menn sem eiga erfið samskipti við föður/móður. Þarna er auðvelt að koma sterk/ur inn sem umönnunaraðilinn eða sá sterki sem er þarna fyrir hinn aðilann og bjargar honum (hetjan) og þarna myndast óheilbrigð þurfandi tengsl (attachment) sem erfitt er að slíta, en geta leitt af sér mikla vanlíðan og óheilbrigði fyrir þann sem verður háður narssistanum með þessum hætti.
  •  Þeir sem redda alltaf öllu. Þeir sem geta séð narssistanum fyrir öllum hans þörfum sögðum og ósögðum og leggja sig í líma við að gera lífið eins þægilegt fyrir hann og unnt er hafa mikið aðdráttarafl fyrir hann. Þrátt fyrir ofurvissu hans um mikilvægi sitt er hann oft of lítill í sér til að ganga í málin sjálfur og að taka ábyrgð sem reddarinn sér honum auðvitað einnig fyrir að taka og kemur honum þannig undan hinum ýmsu axasköftum sem honum verða á.
  •  Ef  þú ert trúaður einstaklingur eða með mjög sterk lífsgildi og háan móralskan stuðul. Ef þú trúir því að þú eigir að fyrirgefa og gefa fólki annað tækifæri þá mun narssistinn nota það óspart, og ef þú sérð það góða í fólki mun hann nota það gegn þér. Þegar þú ætlar að láta hann bera ábyrgð á hegðun eða orðum sínum mun hann snúa því að þér og nota setningar úr þínum móralska grunni sem vopn gegn þér og snúa öllu á hvolf þar til þú veist ekkert hvaðan á þig stendur veðrið. 

Það er afar mikilvægt að skilja þá stöðu sem við erum í hverju sinni í samskiptum okkar og samböndum og að vera ábyrg fyrir vellíðan okkar og vali hverju sinni, og ef þú kemst í kynni við aðila sem kveikir á rauðum ljósum hjá þér eða þegar allar bjöllur fara að klingja hátt hjá þér þá skaltu taka mark á því og koma þér sem lengst í burtu áður en að það verður þér til tjóns.

Því það að fara í samband við manneskju sem er ein persóna þessa stundina en önnur þá næstu, og að lifa í óöruggum aðstæðum alla daga gangandi á eggjaskurn sem má ekki brotna er lífshættulegt ástand og enginn ætti að bjóða sér upp á þannig líf.

Eins er nauðsynlegt að leita sér aðstoðar við að komast frá slíkum aðstæðum þar sem þær eru mjög skaðandi og áfallatengdar og það er mikið til að hæfu fólki sem hefði ánægju af því að aðstoða við uppbyggingu frá slíkum aðstæðum.

Ekki gera ekki neitt ef þú finnur þig í neti narssista því að líf þitt og lífsgæði liggja við.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál