Meðvirkni er helsta plága samfélagsins

Sara Oddsdóttir ráðgjafi og markþjálfi rekur vefinn saraodds.is.
Sara Oddsdóttir ráðgjafi og markþjálfi rekur vefinn saraodds.is. mbl.is/Árni Sæberg

Sara Odds markþjálfi og ráðgjafi sem rekur vefinn saraodds.is var nýlega viðmælandi í Super Real hlaðvarpinu. Sara hefur upplifað margt á ævi sinni og orðið fyrir fleiri áföllum en flestir. 

„Ég lenti í bílslysi fyrir fjórum árum þar sem sonur minn slasaðist mikið. Þar sem aðeins ein mínúta hafi skilið á milli þess að ég hafi verið að skoða bikinimyndir í bílnum með bróður mínum og syni, þar sem ég var á leið til Taílands daginn eftir, en mínútu seinna hafi ég horft á barnið sitt stórslasað, í óvissu hvort það myndi komast af,“ segir Sara í þættinum. 

Sara segir lífið sé hverfult og maður skuli aldrei taka því sem sjálfsögðu. Sjálf hefur hún orðið fyrir andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi. Í viðtalinu ræðir hún mikilvægi þess að vinna úr erfiðum lífsreynslum. Hún segir meðvirkni vera helstu plágu samfélagsins. 

„Meðvirkni rót helstu vandamála sem samfélag okkar glímir við í dag og að ofbeldi sé oftast aðeins ein birtingarmynd þess. Samanburður sé algert eitur. Við munum aldrei ná þroska sem samfélag fyrr en við áttum okkur á því að við erum öll í sama liðinu, karlar og konur. Það er engin keppni í gangi, það hjálpi því engum að benda á einhvern annan í liðinu því það er aðeins eitt lið. Við erum öll í sama liðinu.“

Hún segir vandamálin séu vissulega mörg og ef við ætlum okkur að leysa þau, þá gerist það aðeins í sameiningu, við þurfum að eiga þetta samtal. Við spjöllum um nýju Metoo bylgjuna og segir Sara að við þurfum að mæta öllum í kærleika og auðmýkt. Bæði þolendum og gerendum.

„Samfélagið okkar er gallað, vissulega þarf að gera betur í réttarkerfinu og í þjónustu við þolendur en líka gerendur. Vandamálið er rótgróið samfélagsmein og það verður ekki lagað  fyrr en við kennum börnunum okkar að setja og virða heilbrigð mörk, til sín og annarra. Það gerist ekki með því að benda á einhverja einstaklinga í samfélaginu heldur þarf það að gerast í skólakerfinu, á vinnustöðum, á íþróttaæfingum og heima hjá okkur. Fyrirmyndirnar þurfa að eiga þetta samtal, það þýðir við öll. Við þurfum að læra heilbrigð samskipti, læra að skilja tilfinningar okkar og langanir, og síðast en ekki síst að tjá þær. Heilbrigð samskipti eru forsendur heilbrigðs samfélags.“

Hægt að hlusta á þáttinn í heild sinni á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál