Gott ráð þegar lífið fer í viftuna!

Marta María Jónasdóttir.
Marta María Jónasdóttir. Ljósmynd/Kári Sverriss

Fyrir tíu árum var mér boðið að búa til vef inni á mbl.is sem ætti að höfða til kvenna. Þá var ég búin að starfa sem blaðamaður í áratug og var komin á þann stað að ég nennti alls ekki að gera neitt sem var leiðinlegt. Mig langaði til að draga fram það skemmtilega í okkar samfélagi og hafa fjör í forgrunni. Mitt markmið var að búa til lifandi tímarit á netinu þar sem fólk gæti eflt andann og fengið pásu frá lífinu. Pásu frá fréttum um að allt væri að fara til andskotans og heimurinn væri að farast. Á þessu veftímariti sem Smartland var og er átti fólk að finna leið til að slaka á, fá uppörvun, fá nýjar hugmyndir og helst að verða svo upprifið að það myndi kannski standa upp, teygja vel úr sér, draga andann djúpt og langa til að sigra heiminn. Vefurinn átti líka að hressa þá við sem leið illa en ég nefndi það nú aldrei við nokkurn mann. Smartland átti að vera skjól fyrir þá sem þurftu á því að halda.

Það sem dreif mig áfram í þessu verkefni var áhugi á fólki. Alls konar fólki. Ekki bara ofurfyrirsætum með lága fituprósentu eða mönnum með utanbæjarstrípur og hvíttaðar tennur. Þegar ég hitti fólk fer ég ósjálfrátt að yfirheyra það og oftar en ekki stend ég uppi með þær upplýsingar að viðkomandi sé viðtalsefni. Það búa allir yfir sögu en fólk er misviljugt að deila þeim með öðrum. Mér finnst það þó vera að breytast og í dag er fólk miklu opnara og þorir að segja hvaðan það er að koma og hvert það er að fara.

Mér finnst alltaf gaman að hitta fólk sem hefur notið velgengni í lífinu. Ég elska að vita hvernig það masteraði sína velgengni. Hvað það gerir til að efla sig, hvað drífur það áfram, hvernig það skipuleggur sig og á hvað það leggur áherslu til að lifa sem bestu lífi. Ég kann líka að meta viðtöl við fólk sem hefur upplifað áföll og komist í gegnum þau. Sama hvernig það fór að því. Það hreyfir við mér að fólk hafi lífsvilja þegar það hefur upplifað sorgir lífsins. Á stundum þar sem harmurinn tekur völdin er nefnilega svo ósköp auðvelt að missa hann og húmorinn um leið.

Þá er mjög nauðsynlegt að geta leitað þangað sem gleðin er við völd. Eitt af því sem Smartland hefur alltaf lagt ríka áherslu á í gegnum tíðina er að segja líka svolítið fyndnar fréttir. Eitthvað sem fær okkur til að hlæja smá. Smartland er nefnilega vefur með húmor þótt hinir húmorslausu fatti það ekki alltaf. Þegar 10 ára afmæli Smartlands var í undirbúningi fannst mér ekki annað hægt en að heimsækja Gylfa Þór Þorsteinsson sem hefur staðið vaktina í farsóttarhúsinu síðan veiran kom upp. Hann var framkvæmdastjóri mbl.is þegar Smartland fór í loftið. Gylfi hefur ýmsa fjöruna sopið eins og sagt er og á mjög merkilega sögu en í gegnum sinn harm lærði hann að nota húmorinn. Hann kenndi mér margt þegar við unnum saman en eitt var þó dýrmæt lexía og það var að geta hlegið og haft gaman þótt allt væri að fara í viftuna hjá mér. Fólk gleymir stað og stund meðan á hláturskastinu stendur. Svo líður fólki betur á eftir.

Á þessum tímamótum langar mig að þakka ykkur lesendur fyrir að vera tryggir og trúir. Án ykkar hefði nefnilega ekkert orðið að neinu!

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál