Ekki manneskja sem þarf kynlíf

Leikkonan Drew Barrymore opnaði sig í langri bloggfærslu.
Leikkonan Drew Barrymore opnaði sig í langri bloggfærslu. AFP

Leikkonan Drew Barrymore segist hafa haft í nægu öðru að snúast en að stunda kynlíf eða leita sér að kærasta undanfarin ár. Árið 2016 skildi hún við eiginmann sinn Will Kopelmann, en saman eiga þau tvær dætur. 

Barrymore segir í bloggfærslu á vef sínum að barnauppeldið hafi átt hug hennar undanfarin ár en að hún hafi einnig unnið mikið í sjálfri sér og viðhorfum sínum til ástar og kynlífs. 

Færsluna skrifaði Barrymore vegna frétta úr þætti sínum The Drew Barrymore Show þar sem hún lét þau orð falla að sér fyndist sex mánaða Andrew Garfield ekki vera mikið, hún gæti sleppt kynlífi mun lengur.

„Eftir að hafa eignast tvö börn, skilnað við föður þeirra, er ég búin að njóta þess að færa athyglina þegar kemur að ást til dætra minna og að sjálfri mér. Ég veit að innan þess mengis þarf ekki að vera karlmaður, og þar hefur ekki verið karlmaður í nokkurn tíma. Ég er búin að komast að því í gegnum vinnu með þerapista (með Barry), hann sagði mér nokkra punkta sem ég þurfti að skrifa niður. Hann sagði: „kynlíf er ekki ást! Það er tjáning ástar“. Ég er búin að leita að þessum orðum allt mitt líf til að skilja muninn og núna, þökk sé honum, þá geri ég það,“ skrifaði Barrymore í færslunni. 

Barrymore segir að ást sé ekki kynlíf.
Barrymore segir að ást sé ekki kynlíf. AFP

Ekki í nánu sambandi eftir skilnaðinn

Barrymore segir að eftir skilnaðinn hafi hún fengið að njóta þess að vinna í sjálfri sér og læra um uppeldi barna, sem sé eitthvað sem hún hafi ekki alveg áttað sig á fyrr en nú. „Eftir að ég varð einhleyp móðir hef ég ekki haft tök á að vera í nánu sambandi,“ skrifaði Barrymore.

Hún segist vera á algjörlega allt öðrum stað í lífinu núna og að hún muni kannski fara í samband í náinni í framtíð, en að það hafi einfaldlega ekki verið efst á forgangslistanum. „Þannig að ég er bara ekki manneskja sem þarf kynlíf og þarf að fara þarna út og eiga samskipti við annað fólk á þeim forsendum. Ég er manneskja sem þarf að finna út úr því hvernig tvær ungar stelpur, dætur mínar, og ég sjálf, fullorðin kona, eiga að virka í þessum heimi. Samband við karlmann hefur ekki verið mér efst í huga lengi,“ skrifar Barrymore og segir að sumir fari fljótt aftur í annað samband eftir skilnað. Það sé ekkert að því en að hún sé ekki ein af þeim eins og er.

Hatar samt ekki kynlíf

Leikkonan segist ekki dæma neinn fyrir neitt. Hún hafi alist upp við þá hugmynd að hún myndi finna sér mann, giftast honum, eignast með honum börn og vera með honum út lífið. Þegar það hafi ekki gengið upp hafi heimsmynd hennar brotnað. „Svo ég taki það fram, ég hata ekki kynlíf! Ég er bara loksins búin að komast að því að ást og kynlíf er ekki það sama,“ skrifar hún að lokum og vonast til að allir finni út hvað virkar fyrir þá, og hvað þeim líði vel með. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál