Kynlíf á stórhættulegum stöðum

Farðu út fyrir boxið.
Farðu út fyrir boxið. mbl.is/Thinkstockphoto

Sumt fólk er djarfara en annað og kýs að stunda kynlíf á ólíklegustu stöðum, eða að minnsta kosti ekki bara uppi í rúmi. Stundum geta pör haft mjög gott af smá hvatvísi í kynlífi og það minnir þau á upphafið. 

Kynlífssérfræðingurinn Tracey Cox tók saman nokkrar sögur af pörum sem stunduðu kynlíf á stórhættulegum stöðum. Staðirnir geta veitt þeim innblástur sem eru vanir að stunda kynlíf rétt fyrir háttatíma enda það ekki alltaf mjög spennandi að sögn Cox á vef Daily Mail

Í bílnum

Kona nokkur ákvað að veita kærasta sínum munnmök þar sem þau keyrðu þjóðveg 66 í Bandaríkjunum. Kærastinn var mjög ánægður með konu sína þangað til flutningabílstjóri kom akandi á bíl sínum á næstu akrein og sá hvað var í gangi í bílnum. 

Á spítala

Hjón ákváðu að stunda kynlíf á spítalanum eftir aðgerð sem eiginmaðurinn var í. Á degi tvö leið honum betur og ákvað konan þá að draga fyrir tjaldið við rúmið og veita honum munnmök. Spennan fannst þeim mjög skemmtileg. 

Í IKEA

Par sem var nýbyrjað saman stundaði kynlíf í IKEA á bak við skápa. Kærastan segir það ekki hafa verið erfitt og segjast þau ekki ætla að verða leiðinleg þótt þau séu komin yfir fyrstu daga sambandsins. 

Það þarf ekki bara að stunda kynlíf uppi í rúmi.
Það þarf ekki bara að stunda kynlíf uppi í rúmi. mbl.is/Thinkstockphoto

Út um allt

Par sem er búið að vera saman í átta ár segist stunda kynlíf fjórum til fimm sinnum í viku og hikar ekki við að gera það á nýjum stöðum. Nýlega stunduðu þau kynlíf í herbergi heima hjá systur konunnar. Fyrir ekki svo löngu gerðu þau það uppi á þvottavélinni. Eina skiptið sem eitthvað hefur komið upp á var þegar þau stunduðu kynlíf í kirkjugarðinum. 

Lærðu af framhjáhaldinu

Hluti af því að halda fram hjá er að koma auga á góð tækifæri. Þetta hefur nýst í sambandi sem byrjaði sem framhjáhald. Hættulegasti staðurinn sem parið hefur stundað kynlíf á er púlborð á skuggalegum bar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál