Kominn með yngri og fallegri ástkonu

Konan heldur að maðurinn sé kominn með yngri ástkonu.
Konan heldur að maðurinn sé kominn með yngri ástkonu. mbl.is/Thinkstockphpotos

„Ég hef verið að hitta kvæntan mann og eins skrítið það er hljómar líður mér eins og það sé verið að halda fram hjá mér. Allt var gott í fyrstu af því mér leið eins og ég væri sérstök. Það var ekki allt í lagi hjá honum og konunni hans svo mér leið eins og ég væri til staðar fyrir hann, fyllti í skarðið þegar enginn annar gat það,“ skrifaði kona sem líður undarlega og leitaði ráða hjá Deidra, ráðgjafa The Sun. 

„Hann fékk ekki nóg af mér og hringdi án afláts, sendi skilaboð og birtist heima hjá mér seint um kvöld. Ég er 39 ára og hann er 43 ára. En núna líður mér eins og hann hringi sjaldnar og vanalega er það ég sem hringi og við erum hætt að hittast leynilega. Ég held að hann sé kominn með nýja ástkonu, kannski einhverja yngri og fallegri en mig. Mér líður eins og ég hafi verið notuð. Mig langar að spyrja hann en ég er of hrædd að rugga bátnum af því ég vil ekki missa hann úr lífi mínu.“

Ráðgjafinn bendir á að þetta samband sé dauðadæmt. „Það eru líklega margar ástæður fyrir því að hann hafi ekki verið trúr eiginkonu sinni svo líkurnar eru á því að hann sé ekki trúr þér. Það er enginn framtíð með þessum manni.“

Sambandið er ekki eins líflegt og áður.
Sambandið er ekki eins líflegt og áður. mbl.is/Colourbox
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál