Fær bara fullnægingu undir áhrifum

Konan fær bara fullnægingu þegar hún er í vímu.
Konan fær bara fullnægingu þegar hún er í vímu. Ljósmynd/Pexels

Kona sem á erfitt með að fá fullnægingu án þess að vera undir áhrifum vímuefna leitar ráða hjá ráðgjafa The Guardian

„Ég er 57 ára og er búin að komast að því að ég get bara fengið fullnægingu þegar ég er búin að reykja gras. Makanum mínum líkar þetta illa. Ég gæti bara komist í vímu þegar ég stunda sjálfsfróun þannig það hafi ekki áhrif á hann, en þá fæ ég samt ekki fullnægingu þegar við stundum kynlíf saman.

Ég las mig aðeins til og komst að því að það eru til krem með THC sem gætu aukið næmni þannig að ég þyrfti ekki alltaf að vera í vímu. Ég er líka búin að komast að því að ég er ekki ein um það að fá góðar fullnægingar undir áhrifum kannabis.“

Ráðgjafinn svarar

„THC-krem, sem unnin eru úr kannabisplötunni, gætu hjálpað, og ef þú býrð þar sem þú getur nálgast þau auðveldlega gæti það verið þess virði að prófa. En á meðan það eru lög um grasreykingar, þá eru engin lög sem segja að þú þurfir að fá fullnægingu þegar þú stunda kynlíf með annarri manneskju. Ef fullnæging er markmiðið, þá er líklegt að þú munir upplifa vonbrigði.

Sama hvort þú reykir gras eða ekki, reyndu að færa markmiðið með kynlífi frá því að fá fullnægingu yfir í að veita unað og njóta þín. Segðu maka þínum hvað þú þarft, gras gæti aukið ánægju þína, en það mun ekki bæta samskipti þín, færnmi hans eða hversu náin þið eruð.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál