Sigga er alin upp í alkóhólískri fjölskyldu. Annað foreldri hennar var alið upp við mikinn alkóhólisma, vann aldrei úr sínum áföllum og tók þau með sér inn í uppeldi sinna barna. Sigga er nýjasti gestur Tinnu Barkardóttur sem heldur úti hlaðvarpinu Sterk saman.
„Ég fékk mjög misvísandi skilaboð frá foreldrum mínum varðandi ömmu og afa. Þau voru góð við mig en gremjan var svo mikil gagnvart þeim að ég skildi ekki neitt og hafði ekki forsendur til að skilja,“ segir Sigga.
Sigga fór inn í hlutverk barnsins sem lét allt ganga upp, varð snemma meðvirk og spilaði með í mjög veiku samskiptamynstri.
„Ég var að verða fullorðin þegar foreldri mitt sagði mér að það væri alkóhólisti. Ég trúði því eiginlega ekki því ég sá það aldrei drekka. Það var greinilega svona mikill feluleikur að það sást aldrei áfengi heima.“
Annað foreldri hennar fór í AA samtökin og hitt í al-anon samtökin. Báðir foreldrar hennar voru virkir í þessum samtökum í tvö ár og urðu miklar breytingar á þeim.
„Á þessum tíma fann ég að það hafi greinilega verið vandamál miðað við muninn á öllu eftir að foreldrar mínir fóru inn í þessi samtök. Ég fékk meira að segja afsökunarbeiðni.“
Foreldrar Siggu hættu að leita sér hjálpar en þá fór hún að sækja fundi.
„Ég fór á opinn fund hjá samtökunum, svona afmælisfund sem er haldinn einu sinni á ári og er opinn öllum.“
„Ég lærði svo margt á því að fara í gegnum sporin og vinna þau. Fyrsta sem ég lærði var að ég gat ekki bent á aðra og kennt öðrum um mína bresti, ég þarf að taka ábyrgð á mér og mínu lífi svo ég geti alið mín börn upp í heilbrigðu umhverfi.“
Sigga segir þetta verkefnið endalausa því hún hefur nú þegar misst annað foreldri sitt, af eðlilegum ástæðum, hitt foreldrið hennar hefur drukkið það illa að það er komið með ákominn og óafturkræfan heilaskaða.
„Ég hef séð það frá fyrstu hendi hvernig áfengi getur drepið fólk hægt og rólega.“
Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is.