„Ég ætla að gera allt, ég get ekki meira af þessu lífi“

Sólveig Júlía Linnet er í neyslu og vill komast í …
Sólveig Júlía Linnet er í neyslu og vill komast í meðferð í Danmörku. Ljósmynd/Tinna Barkardóttir

Sólveig Júlía Linnet er 26 ára stelpa úr Laugardalnum. Hún er nýjasti viðmælandi Tinnu Barkardóttur í hlaðvarpinu Sterk saman. Hún lýsir neyslusögu sinni í viðtalinu og vonar að hún komist í meðferð í desember. 

„Æskan mín var góð og ég á bestu foreldra í heimi. Mér leið vel, held ég, þangað til ég var átta eða níu ára en þá dó uppáhalds frændi minn. Eftir það varð ég mjög kvíðin,“ segir Sólveig. 

Hún segir að það hafi verið mjög erfitt að vekja hana og koma henni í skólann, svo erfitt að það varð að barnaverndarmáli.

„Ég man hvað það var erfitt að mæta svo seint í skólann og öll athyglin var á mér þar sem allir kommentuðu á mig. Það jók á kvíðann.“

Sýndi snemma fíknihegðun

Ung var Sólveig farin að sýna fíknihegðun í mat og var þung sem barn. Það hafði mikil áhrif á hennar sjálfsmynd og líðan.

„Ellefu ára byrjaði ég að rúlla upp A4 blöðum og þykjast reykja þau. Stuttu seinna byrjaði ég að reykja.“

Í unglingadeild kynntist hún strák sem gaf henni gras. Eftir það var ekki aftur snúið.

Sólveig flutti tímabundið með foreldrum sínum til Frakklands eftir grunnskóla og komst þar strax í kynni við fólk sem gat útvegað henni efni. Eftir heimkomu fór neyslan að breytast og þróast.

„Ég man að mig langaði að prófa að sprauta mig, ég veit ekki einu sinni af hverju. Ég var með vinkonu minni heima hjá manni og þau voru að nota. Hún sagði nei við mig og ég er þakklát henni fyrir það,“ segir hún.

Eignaðist kærasta á Vogi

Þetta frestaði neyslunni í æð um nokkurt skeið. Á þessum árum fór hún einnig í nokkrar innlagnir á Vog en braut reglur, nýtti sér ekki úrræðið og fór út að nota aftur.

„Ég fór fyrst á Vog átján ára og fannst gaman. Ég eignaðist kærasta, var að sofa hjá þarna inni og nota. Allt sem þú átt ekki að gera,“ segir Sólveig. 

Sólveig hefur upplifað margt á tíu árum í neyslu. Ofbeldi, misnotkun, nauðganir og sjálf hefur hún komið sér í vandræði.

„Ég sótti pakka á pósthúsið sem átti að vera með veip vökva. Ég fékk 20 þúsund krónur fyrir að sækja pakkann. Nokkrum klukkustundum síðar kom löggan heim og þá hafði ég sótt 3,7 lítra af amfetamínbasa, sem ég hafði ekki hugmynd um.“

Hún bætir við að ef hún hefði vitað hvað væri í pakkanum hefði hún ekki samþykkt þessa greiðslu fyrir, eðlilega.

Í dag er Solveig á lokastigi fíknisjúkdóms þar sem hún er ein inni í herbergi og notar vímuefni í æð alla daga.

„Ég á einn séns eftir. Ég fer til Danmerkur í meðferð í byrjun desember og verð í nokkra mánuði, jafnvel ár. Ég ætla að gera allt, ég get ekki meira af þessu lífi.“

Hægt er að hlusta á þáttinn á hlaðvarpsvef mbl.is. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda