Ásdís Rán og Þórður Daníel ástfangin á listasýningu

Þórður Daníel Þórðarson og Ásdís Rán Gunnarsdóttir voru afar glæsileg …
Þórður Daníel Þórðarson og Ásdís Rán Gunnarsdóttir voru afar glæsileg á listaopnuninni. Skjáskot/Instagram

Ásdís Rán Gunnarsdóttir, fyrrverandi forsetaframbjóðandi og athafnakona, mætti ásamt kærasta sínum, Þórði Daníel Þórðarsyni, eiganda verslunarinnar IceStore, á listaverkasýningu í borginni Sofíu í Búlgaríu um helgina. Á sýningunni voru verk eftir búlgarska listmálarann Stavri Kalinov.

Ásdís Rán, sem hefur verið búsett í borginni síðustu ár, birti mynd af sér og Þórði Daníel, bæði með rauðvínsglas við hönd, á Instagram-síðu sinni í gærdag og virðist parið vera yfir sig ástfangið.

Athafnakonan, gjarnan kölluð Ísdrottningin, deildi einnig skemmtilegri mynd af sér með tveimur gjörningalistamönnum sem voru klæddir upp eins og ísfólk.

Ásdís Rán og Þórður Daníel byrjuðu að stinga saman nefjum sumarið 2023 og fögnuðu því eins árs sambandsafmæli sínu fyrr á árinu.



 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda