Á samband framtíð ef hann vill eignast barn en ekki hún?

Maðurinn vill eignast barn, en konan ekki. Hvað skal taka …
Maðurinn vill eignast barn, en konan ekki. Hvað skal taka til bragðs? Samsett mynd

Theodor Francis Birgisson klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hann spurningu frá 42 ára gamalli tveggja barna móður sem er með yngri manni sem þráir að eignast barn. Hvað er til ráða? 

Sæll Theodor. 

Ég er 42 ára gömul, tveggja barna móðir og er í sambandi með manni sem er þremur árum yngri en ég og er barnlaus. Hann langar mikið í barn og vill að við reynum að eignast barn saman. Ég veit ekki hvort ég sé tilbúin í slíkt, það er að segja að ganga í gegnum allan þennan pakka á ný, börnin mín eru bæði á framhaldsskólaaldri, en ég skil að sjálfsögðu vel hans sjónarhorn.

Hvernig er best að nálgast þetta svo að báðir aðilar séu sáttir?

Er einhver framtíð í svona sambandi?

Kveðja, 

HG

 Sæl og blessuð,

svona mál eru verulega snúin. Það er hvorki hægt að ætlast til að einhver vilji eignast barn sem vill það ekki, og breytir það engu hvort viðkomandi eigi börn fyrir eða vilji að upplagi ekki eiga börn.

Það er heldur ekki hægt að ætlast til að einstaklingur sem vill eignast barn hætti að langa til þess. Það er hægt að semja um afar margt í parsamböndum en hvort bæta eigi við barni eða ekki fellur utan þess ramma að hægt sé að mætast á miðri leið. Það eru því afar ólík sjónarmið sem hér er um að ræða og þau eru bæði rétt.

Hér ræður því úrslitum hversu ákveðin hvor aðilinn fyrir sig er í afstöðu sinni. Það er hins vegar afar mikilvægt að fylgja eigin sannfæringu og láta ekki neinn, hvorki maka né nokkurn annan, draga sig inn í óafturkræfa atburðarás sem fer beint gegn sannfæringu þinni. Það er því mikilvægt að þú skoðir mjög vel hvort þú sért tilbúin til að hefja aftur ferli barnaeignar með öllu sem því fylgir, og ef svarið er nei en maðurinn þinn sækir í það stíft að vilja eignast barn þá eru miklar líkur á að þið lendið í vandræðum með sambandið ykkar. Þar sem þetta er stórt og mjög flókið viðfangsefni þá myndi ég undantekningalaust mæla með að fagaðili yrði fenginn til að fara yfir þetta með ykkur. Ég vona að þetta hjálpi.

Kær kveðja,

Theodor.

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Theodor spurningu HÉR. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda