Hlý, trú og trygg

Ingveldur Þ. Einarsdóttir
Ingveldur Þ. Einarsdóttir

Ingveldur Þ. Einarsdóttir 29.4. 1959

Elsku Ingveldur, til hamingju með að hafa verið skipuð hæstaréttardómari og þú akkúrat á tímamörkunum til að byrja nýtt tíu ára tímabil.

Þú ert búin að ljúka svo mörgu, lagfæra svo margt skref fyrir skref að þinn tími var svo sannarlega kominn að stíga í þessa pontu.

Í gegnum tíðina hefurðu breytt lífi fólks og reynt að gefa af þér eins og frekast þú getur. Þú ert hlý, trú og trygg þínum og gefur þér þann kraft að leyfa þér að breyta um skoðun á manneskjum eða málefnum ef þykja þarf. Þetta er mikil dyggð, sérstaklega ef við skoðum næstu tíu árin hjá þér.

Þetta verða svo sannarlega bestu árin sem þú hefur lifað svo þú getur leyft þér að hlakka til. Það verður mikill hraði á árinu 2020 og sjálfsögðu munu einhverjir hafa horn í síðu þinni en það er bara partur af prógramminu, alveg sama hvar maður er í þjóðfélaginu.

Þú hefur unnið þig upp með orku íþróttamannsins frá unga aldri og hefur hæfileika kamelljónsins, þú lagar þig að öllum aðstæðum sem þú ert sett í. Orðheppni er sterkasta gjöfin þín og þú hefðir orðið dásamlega góður kennari (sem getur vel verið að þú hafir verið). Þú hefur þennan hæfileika að fólk sem þú kennir skilur og skynjar vel það sem þú segir. Þú hefur svo einstaka þolinmæði, sérstaklega gagnvart unga fólkinu, að enginn mun gleyma þér, svo sterk eru áhrif þín.

Þú hefur alltaf verið með ríka réttlætiskennd og stutt foreldra og fjölskyldumeðlimi meira en margur og gerir allt sem þú getur skilyrðislaust.

Það er eitt annað. Þú hefur afgerandi sterkt minni sem getur líka verið mínus vegna þess að þú hendir ekki frá þér nógu auðveldlega erfiðum minningum. Þú þarft að æfa þig í að fara út með ruslið í heilanum og henda sumum minningum. Það gamla er búið og núna er núið.

Talan þrír táknar líka að þú hafir fjölmarga hæfileika sem þú hefur kannski ekki skoðað nógu vel heldur eru þeir bara inni í skáp og teipað fyrir. Þú átt erfitt með að monta þig en mont og stolt eru systur svo þú mátt svo sannarlega hreykja þér á hæsta steininum fyrir ýmislegt skemmtilegt sem þú kannt.

Þetta vita einungis þínir nánustu. Þú ert með gott fók í kringum þig og hefur það djúpa innsæi að vita hverja þú getur treyst á, sem er mikilvægt, alveg sama hvaða starfi maður gegnir.

Stjörnumerki Ingveldar er naut.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál