Ofurbomban Kim Kardashian neyddi fyrrverandi eiginmann sinn, Kris Humphries, til að koma fram í raunveruleikaþáttum sínum. Körfuboltamaðurinn og fyrrverandi eiginmaður Kardashian vildi ekki láta sjá sig í þáttunum hennar en hún sagði að það kæmi ekkert annað til greina en að hann gerði það.
Vefmiðillinn RadarOnline heldur því fram að Humphries hafi alls ekki viljað taka þátt í raunveruleikaþáttunum en þá hafi Kardashian nefnt fyrrverandi kærastann sinn á nafn og haldið því fram að hann hafi alltaf verið til í allt.
„Humphries er mikill prívat-maður og vildi alls ekki vera í sviðsljósinu. Hvað þá að vera hluti af raunveruleikaþætti hennar,“ sagði heimildarmaður í samtali við vefmiðilinn.
Kardashian á að hafa notað sinn fyrrverandi kærasta, Reggie Bush, sem grýlu til að fá Humphries til að leika með. Hún þreyttist ekki á því að nefna hann á nafn þegar hennar ektamaður reyndi að komast undan þátttöku í raunveruleikaþáttunum.
Þátttaka Humphries í raunveruleikaþáttunum eru honum ekki til framdráttar. Í einum þættinum setti hann út á hvað Kardashian borðaði mikið. Hann sagði að hún væri að tríta sig allt of vel með því að borða of stóra sneið af brúðartertunni. Stuttu síðar rak hann við nálægt andlitinu á henni.
Nú ætlar ungfrú Kardashian að reyna að snúa vörn í sókn og nota raunveruleikaþætti sína til þess að hressa upp á ímynd sína. Sagt er í fjölmiðlum vestanhafs að ímynd hennar sé einmitt í molum eftir að hún skildi við Humphries eftir 72 daga hjónaband.