Þorir ekki að eignast kærustu

Kris Humphries er enn að jafna sig eftir skipbrotið í fyrra og er ákveðinn í að stofna ekki til ástarsambands á nýjan leik fyrr en hann er löglega skilinn við Kim Kardashian.

Körfuboltakappinn og veruleikastjarnan standa í erfiðum skilnaði en hjónaband þeirra á síðasta ári entist aðeins 72 daga eins og frægt er orðið.

Kardashian var ekki lengi ein og er nú með rapparanum Kanye West.

Humphries hefur aftur á móti tjáð vinum sínum að hann ætli ekki í nýtt samband fyrr en skilnaður hans og fyrrverandi eiginkonunnar er genginn í gegn, en það verður væntanlega síðar í sumar.

Nýlegar myndir af körfuboltastjörnunni á Miami-strönd með dökkhærðri konu, sem minnir óneitanlega á Kardashian, komu af stað orðrómi um að hann væri kominn með nýja konu en sú er að sögn ekki raunin.

„Það hvarflar ekki að Kris að fara í nýtt samband fyrr en hann hefur fengið lögskilnað,“ segir vinur hans í samtali við fréttavefinn RadarOnline.

„Hann er ekki tilbúinn í nýtt samband. Hann lifir auðvitað engu munkalífi en hann er ekki byrjaður með nýrri konu, það er alveg  á hreinu,“ segir vinurinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda