Jennifer Connelly með barnið í Bankastræti

Jennifer Connelly skoðar í búðarglugga í Reykjavík.
Jennifer Connelly skoðar í búðarglugga í Reykjavík. mbl.is/Marta María

Leikkonan Jennifer Connelly er stödd hérlendis ásamt eiginmanni sínum, Paul Bettany, og börnum þeirra. Smartland rakst á hjónin þegar þau röltu um Reykjavík og nutu veðurblíðunnar. Þau gengu meðal annars niður Laugaveg og Bankastræti. Í Bankastrætinu stoppuðu þau í 66 Norður og keyptu íslenskan hátískuútivistarfatnað.

Fjölskyldan kom til landsins á fimmtudaginn í síðustu viku og hefur lítið farið fyrir þeim hérlendis. Leikkonan er hérlendis í tökum á myndinni Noah, en þar leikur hún á móti Russell Crowe, Anthony Hopkins og Emmu Watson.

Á myndunum sést Jennifer Connelly með dóttur sína í fanginu en hún fæddist í maí 2011. Hún klæddist að Hollywood-stjörnusið, ljósum gallabuxum og með sólgleraugu. Aðstoðarmaður hjónanna var með í för í dag en hann klæddist svartri 66 Norður-úlpu eins og sést á myndunum.

Jennifer Connelly og Paul Bettany ásamt börnum sínum og aðstoðarfólki.
Jennifer Connelly og Paul Bettany ásamt börnum sínum og aðstoðarfólki. mbl.is/Marta María
Jennifer Connelly og fjölskylda í Reykjavík.
Jennifer Connelly og fjölskylda í Reykjavík. mbl.is/Marta María
mbl.is/Marta María
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál