Sigmundur Davíð 40 ára í Köben

Anna Sigurlaug Pálsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson með dótturina Sigríði …
Anna Sigurlaug Pálsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson með dótturina Sigríði Elínu sem fædd er 2012. mbl.is

Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra er 40 ára í dag. Hann nýtur afmælisins í Kaupmannahöfn ásamt eiginkonu sinni, Önnu Sigurlaugu Pálsdóttur. Hjónin eiga eina dóttur, Sigríði Elínu sem fædd er 2012.

Í Morgunblaðinu í dag er Sigmundur Davíð spurður að því hvort það sé erfitt að vera hvoru tveggja í senn, góður fjölskyldufaðir og góður forsætisráðherra?

„Það er auðvitað oft og tíðum flókið að flétta saman starfinu og góðum stundum með fjölskyldunni. En við njótum þeim mun betur þess tíma sem við eigum saman, höfum t.d. ákaflega gaman að því að ferðast saman, bæði innanlands og utan,“ segir hann í samtali við Morgunblaðið.

HÉR er hægt að lesa viðtalið við Sigmund Davíð í heild sinni.

Sigmundur Davíð á göngu um gömlu Kaupmannahöfn.
Sigmundur Davíð á göngu um gömlu Kaupmannahöfn. mbl.is
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál