10 heitustu piparsveinar landsins

Gunnar Nelson er sterkur og á lausu.
Gunnar Nelson er sterkur og á lausu. mbl.is/Árni Torfason

Smartland Mörtu Maríu hefur tekið saman lista yfir eftirsóknarverðustu piparsveina landsins. Eins og sést á listanum er hann fjölbreyttur og á honum kemur líka ýmislegt á óvart.

Gunnar Nelson þarft vart að kynna en hann er 27 ára gamall bardagaíþróttamaður. Hann er nú staddur í Las Vegas eftir að hafa sigrað Brandon Thatch í bardaga síðastliðinn laugardag. Þær sem fíla hlédræga slagsmálahunda ættu að kunna að meta hann.

Páll Winkel fangelsismálastjóri.
Páll Winkel fangelsismálastjóri. mbl.is/Júlíus

Páll Egill Winkel fangelsismálastjóri er 42 ára gamall og á lausu. Hann útskrifaðist úr lagadeild Háskóla Ísland árið 2000 og er búsettur í Garðabænum. Hann var skipaður fangelsismálastjóri 2007 en starfaði áður sem framkvæmdastjóri Landssambands lögreglumanna.

Jökull Sólberg er ungur frumkvöðull.
Jökull Sólberg er ungur frumkvöðull. Facebook

Jökull Sólberg Auðunsson er ungur frumkvöðull sem starfaði lengi vel sem vörustjóri fyrirtækisins Plain Vanilla. Hann hefur nú siglt á ný mið og stofnað sitt eigið fyrirtæki Lemonade.

Fyrirsætan Orri Helgason.
Fyrirsætan Orri Helgason. Facebook

Orri Helgason er 21 árs gamall og starfar sem fyrirsæta. Hann útskrifaðist með stúdentsgráðu frá Verslunarskóla Íslands árið 2014 og fór eftir það ferðast um heiminn.

Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.
Magnús Þór Gylfason, yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar.

Magnús Þór Gylfason er yfirmaður samskiptasviðs Landsvirkjunar. Hann hefur komið víða við í viðskiptalífinu og er búsettur í 101 Reykjavík. Hann var aðstoðarmaður Hönnu Birnu Kristjánsdóttur þegar hún var borgarstjóri í Reykjavík.

Ríkharður Daðason.
Ríkharður Daðason. mbl.is/Golli

Ríkharður Daðason er fyrrverandi íslenskur knattspyrnumaður og spilaði lengst af með Fram. Hann bjó með Þóreyju Vilhjálmsdóttur aðstoðarkonu Hönnu Birnu Kristjánsdóttur og núverandi formanns Ferðamálaráðs Íslands.

Sturla Atlas.
Sturla Atlas. Facebook

Sturla Atlas er nemandi í Listaháskóla Íslands og hefur gefið út tónlist undir ýmsum dulnefnum undanfarin ár. Hann er sonur leikarans Atla Rafns Sigurðssonar sem prýddi oftar en ekki samskonar lista og þennan þegar hann var yngri.

Sólmundur Hólm er þekktur fyrir skemmtilegan húmor.
Sólmundur Hólm er þekktur fyrir skemmtilegan húmor. Morgunblaðið/Ómar

Sólmundur Hólm er 32 ára útvarpsmaður, söngvari og skemmtikraftur. Hann er þekktur fyrir mikinn og skemmtilegan húmor.

Sölvi Blöndal rappari í hljómsveitinni Quarashi.
Sölvi Blöndal rappari í hljómsveitinni Quarashi. Golli / Kjartan Þorbjörnsson


Sölvi Blöndal er hagfræðingur og starfar hjá fjárfestingarfélaginu Gamma. Hann sló fyrst í gegn sem rappari og var í hljómsveitinni Quarashi.  Í seinni tíð hefur hann náð að sameina hagfræðina og rappið og þykir mjög töff.

Gísli Rúnar alltaf hress.
Gísli Rúnar alltaf hress. Árni Sæberg

Gísla Rúnar Jónsson þekkja margir en hann hefur starfað sem leikari, leikstjóri og handritshöfundur. Hann var giftur leikkonunni Eddu Björgvinsdóttur og er nú búsettur í Kaliforníu. Konur sem elska góðan húmor ættu að smella einu læki á hann á Tinder!

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál