11 heitustu einhleypu konur landsins

Vera Sölvadóttir og Manuela Ósk Harðardóttir eru einhleypar.
Vera Sölvadóttir og Manuela Ósk Harðardóttir eru einhleypar.

Landið er fullt af fjallmyndarlegum, gáfuðum og klárum konum í lausagangi. Í vikunni dustuðum við rykið af heitustu piparsveinunum en nú er komið að kvenpeningnum. Smartland Mörtu Maríu fór á stúfana og fann heitustu einhleypu konur landsins.

Edda Hermannsdóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri hjá Íslandsbanka.
Edda Hermannsdóttir hefur verið ráðin samskiptastjóri hjá Íslandsbanka. Mynd/Íslandsbanki

Edda Hermannsdóttir fyrrverandi aðstoðarritstjóri Viðskiptablaðsins og núverandi samskiptastjóri Íslandsbanka er á lausu. Edda er í fantaformi enda kennir hún leikfimi mörgum sinnum í viku í World Class á Seltjarnarnesi og hefur hjálpað mörgum að koma sér í varanlegt form. Edda er mikill húmoristi sem kallar ekki allt ömmu sína eins og sagt er.

Manúela Ósk Harðardóttir fyrir Nýtt Líf.
Manúela Ósk Harðardóttir fyrir Nýtt Líf. Ljósmynd/Nýtt Líf

Manúelu Ósk Harðardóttur þarf vart að kynna. Hún stundar nám við fatahönnunardeild Listaháskóla Íslands en dvelur í Los Angeles í sumar. Manúela hefur unnið fyrir fræga hönnuði á borð við Soniu Rykiel og hefur mikinn áhuga á öllu sem viðkemur tísku og hönnun. Hún heldur úti líflegum Snapchat og Instagram aðgangi fyrir þá sem vilja fylgjast með ævintýrum hennar.

Ólafía Kristjánsdóttir er á lausu.
Ólafía Kristjánsdóttir er á lausu. Ljósmynd/ Arnold Björnsson

Einn eftirsóttasti húðflúrari landsins, Ólafía Kristjánsdóttir, er á lausu. Hún starfar á Reykjavík Inc og svo hefur hún keppt í fitness. Hún er heilbrigðið uppmálað og reykir hvorki né drekkur.

Vera Sölvadóttir
Vera Sölvadóttir mbl.is/Árni Sæberg

Vera Sölvadóttir kvikmyndagerðarkona og einn af umsjónarmönnum Djöflaeyjunnar er á lausu. Vera geislar af heilbrigði og stundar Vesturbæjarlaugina af kappi. Þar hangir hún ekki í heita pottinum heldur syndir heilu kílómetrana eins og ekkert sé. Hún er þó ekki bara góð sundkona heldur sniðug og klár.

Diljá Helgadóttir keppandi í Ungfrú Ísland.
Diljá Helgadóttir keppandi í Ungfrú Ísland. Facebook

Diljá Helgadóttur ættu flestir að kannast við. Þessi unga athafnakona stundar nám við lögfræðideild Háskólans í Reykjavík en þar situr hún einnig í stjórn nemandafélagsins Lögréttu. Hún er framsóknarkona og æfði lengi vel fóbolta með HK og söng. Diljá er keppandi í Ungfrú Ísland og vakti mikla lukku  á Snapchat aðgangi keppninnar.

Hulda María Stefánsdóttir saksóknari er á lausu.
Hulda María Stefánsdóttir saksóknari er á lausu.

Saksóknarinn Hulda María Stefánsdóttir er á lausu. Hulda María er meðvituð um að lífið er núna og veigrar sér ekki við að taka þátt í hinum ýmsu ævintýrum. Sérstaklega ekki ef þau tengjast útivist. Hún er mikil hjólakona en hún hjólaði um eyjuna Mallorca á dögunum ásamt fríðum hópi kvenna.

Fyrirsætan Andrea Röfn Jónasdóttir.
Fyrirsætan Andrea Röfn Jónasdóttir. Facebook

Fyrirsætan Andrea Röfn Jónasdóttir er einhleyp. Hún er ein af vinsælustu fyrirsætunum á Íslandi í dag og hefur setið fyrir í alls kyns myndaþáttum. Hún starfar einnig sem flugfreyja hjá Icelandair og hefur gaman af því að ferðast.

Eik Gísladóttir og Sindri Sindrason í baði.
Eik Gísladóttir og Sindri Sindrason í baði. Ljósmynd/visir.is

Eik Gísladóttir hárgreiðslukona er á lausu. Eik var gift Heiðari Helgusyni fótboltamanni en upp úr hjónabandi þeirra slitnaði á síðasta ári. Eik er uppátækjasöm og leggur mikið upp úr því að lifa skemmtilegu lífi. Hún er ein af þeim sem lætur ekkert stoppa sig.

Unnur Eggertsdóttir býr í New York.
Unnur Eggertsdóttir býr í New York.

Unnur Eggertsdóttir eða Solla stirða eins og margir kannast við hana er ung og efnileg. Hún er búsett í New York þar sem að hún stundar leiklistarnám við The American Academy of Dramatic Arts. Unnur er þekkt fyrir að bregða sér í hlutverk Sollu stirðu á barnaskemmtunum en hún hefur auk þess tekið þátt í Eurovision.

Sigga Heimis.
Sigga Heimis. mbl.is/Styrmir Kári

Iðnhönnuðurinn Sigga Heimis er á lausu. Sigga starfar hjá  IKEA í Svíþjóð en býr á Íslandi. Hún þykir með eindæmum hress og skemmtileg eins og lesendur Smartlands Mörtu Maríu hafa fengið að kynnast en við fylgdumst með því þegar hún breytti eldhúsinu hjá sér. Sigga er ein af þeim sem lætur ekkert stoppa sig en við brutum niður vegg heima hjá henni og hún skrúfaði innréttinguna upp sjálf með hjálp vinkvenna sinna.

Kristín Eva Ólafsdóttir.
Kristín Eva Ólafsdóttir.

Kristín Eva Ólafsdóttir grafískur hönnuður og einn af eigendum Gagarín er á lausu. Kristín Eva og fyrirtæki hennar hafa sópað að sér verðlaunum upp á síðkastið. Hún er smekkleg með skíra framtíðarsýn.

10 heitustu piparsveinar landsins

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál