Adele splæsti í fokdýrt glæsihýsi

Húsið er allt hið glæsilegasta.
Húsið er allt hið glæsilegasta. Ljósmynd skjáskot Daily Mail

Söngfuglinn Adele hefur heldur betur verið að gera góða hluti undanfarið, en á dögunum skrifaði hún undir risasamning við Sony.

Eins og sjá má er Adele ekki á flæðiskeri stödd, en hún festi á dögunum kaup á stærðarinnar glæsihýsi. Slotið, sem er ekki af verri endanum, kostaði 9,5 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 1,2 milljarða íslenskra króna.

Það ætti ekki að væsa um litlu fjölskylduna, en í húsinu er að finna fjögur svefnherbergi, sex baðherbergi og að sjálfsögðu er sundlaug í garðinum. Nágrannar söngkonunnar eru svo ekki af verri endanum, en Jennifer Lawrence, Cameron Diaz auk þess sem hjónakornin Mila Kunis og Ashton Kutcher búa í nágrenninu.

Fleiri myndir má sjá á vef Daily Mail

Húsið er bjart og huggulegt.
Húsið er bjart og huggulegt. Ljósmynd skjáskot Daily Mail
Eldhús, stofa og borðstofa mætast í opnu rými.
Eldhús, stofa og borðstofa mætast í opnu rými. Ljósmynd skjáskot Daily Mail
Sundlaugin er alger draumur.
Sundlaugin er alger draumur. Ljósmynd skjáskot Daily Mail
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál