Beckham-fjölskyldan á Þríhnúkagíg

Guðmundur Óskar og David Beckham á góðri stundu við Þríhnúkagíg.
Guðmundur Óskar og David Beckham á góðri stundu við Þríhnúkagíg. Ljósmynd/Instagram @goskar

Hjónin David Beckham og Victoria Beckham eru stödd hér á landi ásamt fjölskyldu sinni. Í dag fóru þau á Þríhnúkagíg með Guðmundi Óskari Guðmundssyni, bassaleikara hljómsveitarinnar Hjaltalín. Þessu greindi Vísir fyrst frá. 

Guðmundur Óskar nýtti tækifærið og fékk mynd af sér með David Beckham áður en farið var ofan í gíginn. 

Beckham-fjölskyldan er hér í sumarfríi hjá vinafólki sínu, þeim Björgólfi Thor Björgólfssyni og fjölskyldu. Björgólf­ur Thor og Krist­ín Ólafs­dótt­ir eiginkona hans þekkja Beckham-hjón­in í gegn­um syni sína sem fædd­ir eru 2005. Þeir stunda sam­an nám í Lundúnum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál