Guðni Th. bauð grínara í mat

Hér eru forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Elíza Reid ásamt …
Hér eru forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Elíza Reid ásamt grínaranum Ricky Gervais og sambýliskonu hans, Jane Fallon. Á myndinni eru líka Saga Garðarsdóttir, Snorri Helgason, Rut Guðnadóttir, Ari Eldjárn og Ísleifur Þórhallsson. Ljósmynd/forseti.is

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands bauð Ricky Gervais leikara og skemmtikrafti í hádegismat á Bessastaði. Þau ræddu ýmislegt skemmtilegt í þessu boði eins og fyndni og skemmtilegheit. Hann er staddur hér á landi vegna uppistands í Hörpu sem fram fór í gærkvöldi og líka í kvöld. Forsetahjónin mættu á uppistand gærkvöldsins og skemmtu sér konunglega. 

„Forsetahjón bjóða Ricky Gervais, leikara og skemmtikrafti, og sambýliskonu hans, rithöfundinum Jane Fallon, til hádegisverðar á Bessastöðum. Undir borðum var rætt um mátt skops og fyndni í samfélaginu, hugsanleg mörk hins leyfilega eða þolanlega í því sambandi og muninn á góðlátlegu gamni og stríðni eða einelti. Meðal annarra gesta voru einnig uppistandararnir Ari Eldjárn og Saga Garðarsdóttir,“ segir á vef forseta Íslands. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál