„Hver dag­ur með hon­um er æv­in­týri“

Ellý Ármannsdóttir prýðir forsíðu MAN.
Ellý Ármannsdóttir prýðir forsíðu MAN.

Ellý Ármanns fjölmiðlakona prýðir júlíforsíðu MAN sem kemur í verslanir í dag, fimmtudag. Í einlægu viðtalinu fer Ellý um víðan völl og ræðir m.a. áhrifin sem afskiptaleysi föður í uppvextinum hafði á hana og gerir enn. Föður Ellýjar var dæmt faðernið þegar hún var þriggja ára gömul en samband komst ekki á fyrr en á hennar fullorðinsárum. Ellý gerir upp tilfinningarnar sem þessu fylgdu, föðurmissinn sem hún svo  upplifiði nýverið, skilnað eftir 13 ára samband og nýju ástina í lífi sínu.

Ellý kynntist Steingrími Erlingssyni, stofnanda Biokraft, fyrir um ári, þau vinna nú saman að uppbyggingu á vindmyllum og ferðaþjónustu í Þykkvabænum og er augljóst að Ellý er alsæl með nýja sambandið.

„Hver einasti dagur með honum er ævintýri líkastur. Við látum eins og kjánar en á sama tíma erum við samstillt og það á jafningjagrundvelli,“ segir Ellý og bætir við: „Svo drekkur hann ekki áfengi sem er mikill kostur. Líf mitt er gott núna. Mjög gott. Loksins.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál