Kolfinna Von Arnardóttir og eiginmaður hennar, Björn Ingi Hrafnsson fjölmiðlamaður, fluttu myndbandskveðju frá þjóðhetjunni Lars Lagerback í brúðkaupsveislu Arons Einars Gunnarssonar landsliðsfyrirliða og Kristbjargar Jónasdóttur fitnessdrottningu á Þjóðhátíðardaginn.
Lars, sem var auðvitað lengi landsliðsþjálfari Íslands og líklega vinsælasti maðurinn á Íslandi, flutti brúðhjónunum fallega kveðju á myndbandi sem Björn Ingi sýndi í brúðkaupsveislunni.
Kolfinna Von var veislustjóri í brúðkaupinu ásamt Rúrík Gíslasyni landsliðsmanni. Hún er aðaleigandi og framkvæmdastjóri tískuhátíðarinnar Reykjavik Fashion Festival.
Hún var klædd í íslenska hönnun í tilefni dagsins; kjóllinn hennar er úr smiðju Anitu Hirlekar og var sýndur á sumarlínunni á tískuvikunni í London í fyrra. Kjóllinn er einstakur og skiptist í bol og pils og samanstendur af þykkum silkiþráðum. Anita Hirlekar er upprennandi hönnuður sem hefur vakið athygli að undanförnu á alþjóðavísu, en hún er útskrifuð úr einum virtasta skóla heims í fatahönnun, Cantral Saint Martins í Lundúnum.