Íþróttafréttamaðurinn Hörður Magnússon og Guðrún Björk Kristinsdóttir létu pússa sig saman í Hafnarfjarðarkirkju á laugardaginn.
Hörður var í bláum jakkafötum eins og vinsælt er þessa dagana en Guðrún Björk var stórglæsileg í hvítum brúðarkjól.
Eins og sjá má á myndinni lék veðrið við þau þegar vinir og vandamenn fögnuðu brúðhjónunum eftir athöfnina. Smartland óskar þeim Herði og Guðrúnu innilega til hamingju með daginn.