„Það hefur gengið á ýmsu síðustu daga“

Sigvaldi Kaldalóns eða Svali eins og hann er kallaður, einn ástsælasti útvarpsmaður landsins, er fluttur til Tenerife með fjölskyldu sinni. Fjölskyldan flaug út í gærmorgun og fékk íbúðina afhenta við komuna til Tenerife. 

„Það hefur gengið á ýmsu síðustu daga og við höfum þurft að hafa okkur öll við að skrúfa hausinn rétt á. Það er dálítið átak að rífa alla upp með rótum og hefja þetta ferðalag. Dagarnir milli jóla og nýárs hafa eingöngu farið í að ganga frá öllu og sem betur fer höfum við haft góða að til að aðstoða með krakkana og öll verkin. Höfum ekki náð að vera í þeim jólaanda sem við erum oftast í. En allir eru brattir og spenntir, en auðvitað örlar fyrir kvíða líka,“ segir Svali í sínum nýjasta pistli á Smartlandi: 

Þetta er þannig verkefni að maður þarf að ná að sleppa tökunum á öllu sem maður telur vera norm og taka bara einn dag í einu. Það er allavegana mottóið hjá okkur núna. Við erum með 7 stórar töskur, 5 í handfarangri, kerru og eitt stykki reiðhjól meðferðis. Skrýtið að hugsa til þess að það eigi að vera nóg fyrir okkur öll svona miða við draslið sem maður er búinn að fara í gegnum, maður lifandi hvað maður getur hangið á miklum óþarfa.

Þetta er pínu skrítinn tími og það náði toppi (hingað til) þegar við vorum búin að tæma íbúðina og vissum að þangað vorum við ekki að snúa aftur. Höfum búið þarna í rúm 9 ár og því eðlilega margar minningar sem tengjast henni. En það góða er að við erum að fara að skapa nýjar og frábærar minningar. Það er auður að geta ferðast, skoðað og lært á lífið með margbreytilegu sjónarhorni. 

Næsta blogg sem verður skrifað verður skrifað á svölunum heima á Calle Galicia, Costa Adeje.

Getið líka fylgst með á Snappinu mínu: Svalik.  Bestu kveðjur í bili, Svali og co. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál