Spenningurinn breyttist í vonbrigði

Sigvaldi Kaldalóns eða Svali eins og hann er kallaður er búinn að dvelja í viku á Tenerife og játar í sínum nýjasta pistli að þetta taki alveg á. 

„Spenningurinn var mikill þegar við vorum að leggja af stað, það er skrítið að fara í flug og vita að maður er ekki beint á leiðinni til baka á næstunni og ekki gekk erfiðlega að kveðja eða neitt slíkt þetta var bara allt svo skrítið,“ segir Svali í pistli sínum á Smartlandi: 

Við lentum í 23 stiga hita og vorum ofurspennt að sjá íbúðina sem við erum búin að skoða 300 sinnum á þessum fáu myndum sem við fengum. Spenningurinn breyttist í veruleg vonbrigði. Íbúðin sjálf er fín, æðislegar svalir, geggjað útsýni, sundlaug og stofan er fín. En það vantar megnið af  húsgögnunum sem um var talað. Svo hefur gengið erfiðlega að fá því viðbætt sem okkur vantar, þannig að við ætlum að finna aðra íbúð sem fyrst. Við gerðum við hann (eigandann) 3 mánaða samning en hann sagði við okkur að við gætum losnað út fyrr ef við gæfum honum 15 til 20 daga. Margir hafa  spurt mig á snappinu af hverju við komum okkur ekki bara fyrir þarna, frábær staður og íbúðin í lagi og svona. En málið er bara að við  borgum 1.500 evrur á mánuði fyrir þetta og miðað við það sem maður getur fengið fyrir þetta verð hér langar okkur að skipta. 

Hausinn hefur verið að stríða manni og ég viðurkenni að ég svaf ekki mjög mikið fyrstu 3 dagana. Margt sem ég hugsaði og þá aðallega „hvað ertu búinn að koma þér út í?“ Lá í ókunnugu rúmi í ókunnugu landi og þykist ætla að fara að vinna hér og að öllum í fjölskyldunni líki við þessa dvöl. En sem betur fer þá erum við samstiga í þessu og við eigum góða að hér úti sem brosa út í annað og benda manni á að þetta hafi verið nákvæmlega eins hjá þeim. Þá man maður að þetta er alveg hægt og þetta er ekki svo galið. 

Að vakna með bláan himin alla daga klukkan átta er geggjað. Pínu furðulegt að átta sig á að hér gerir maður annað en heima og það tengist allt veðrinu. Maður segist ekki láta veðrið stoppa sig heima en maður gerir það samt. Við ætlum að vera í frígírnum fram í næstu viku en þá fara skólamálin í gang hjá strákunum og einhver rútína fer að myndast. 

Eitt að lokum, ég mæli svo mikið með því að prufa að eyða áramótum hérna úti. Það var svakalega gaman. 

Snapchat:svalik 

Instagram: svalikaldalons

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál