Jóhanna og Sunneva Eir á snekkju

Jóhanna Helga Jensdóttir og Sunneva Eir Einarsdóttir.
Jóhanna Helga Jensdóttir og Sunneva Eir Einarsdóttir.

Samfélagsmiðlastjarnan Sunneva Eir Einarsdóttir bauð vinkonu sinni, Jóhönnu Helgu Jensdóttur, í siglinu á snekkjunni Amelíu Rose í tilefni af 22 ára afmæli hennar. 

„Þetta var ekkert smá skemmtilegt og gaman að prófa,“ segir Jóhanna Helga, flugfreyja hjá Wow air, í samtali við Smartland.

„Ég átti afmæli daginn áður en þetta var nú eiginlega afmælishelgin mín. Ég er svo mikið afmælisbarn.“

Snekkjan Amalía Rose sigldi út að Viðey og fram hjá Hörpunni.

„Það voru léttar veitingar í boði um borð þannig að við vorum bara öll saman að borða, spjalla og njóta útsýnisins,“ segir hún og bætir við:

„Eftir siglinguna fórum við heim til mín og grilluðum saman. Afmælishelgin var yndisleg í alla staði.“

Hvað fékkstu í afmælisgjöf?

„Ég fékk Louis Vuitton-tösku, hring og miða á Beyonce og Jay Z í London.“

Vinkonurnar skemmtu sér konunglega.
Vinkonurnar skemmtu sér konunglega.
Það fór vel um þær á snekkjunni.
Það fór vel um þær á snekkjunni.
Á sjó!
Á sjó!
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál