Vilhjálmur og Lína fóru til Barcelona

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Lína Birgitta Sigurðardóttir. Myndin birtist á …
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson og Lína Birgitta Sigurðardóttir. Myndin birtist á Snapchat-síðu Línu Birgittu. Ljósmynd/Snapchat

Vilhjálmur H. Vilhjálmsson lögmaður og Lína Birgitta Sigurðardóttir bloggari og áhrifavaldur nutu lífsins saman í Barcelona um nýliðna helgi. 

Bæði hafa Vilhjálmur og Lína Birgitta gaman að ferðalögum um heiminn. Hann hefur síðustu ár dvalið mikið á Ítalíu þar sem hann nýtur lífsins á milli þess sem hann stígur öldur lögmennskunnar. Hún er líka mikið á ferð og flugi um heiminn þar sem hún drekkur í sig nýjustu tískustrauma og menningu ólíkra landa. 

Vilhjálmur og Lína Birgitta hafa ekki bara gaman af ferðalögum heldur hafa þau brennandi áhuga á tísku. Áður en Vilhjálmur fór í lögfræði gekk hann undir nafninu Villi í 17, en hann starfaði í versluninni á unglingsaldri og þótti lunkinn sölumaður. 

Þeir sem fylgjast með Vilhjálmi vita að hann er enn þá með puttana á púlsinum þegar kemur að tísku en svo hefur hann líka raðað sér á lista yfir heitustu piparsveina Íslands en hann sagði skilið við fyrri konuna sína 2015. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál