Berglind Icey komin með kærasta

Örn Valdimar Kjartansson og Berglind Icey eru fallegt par.
Örn Valdimar Kjartansson og Berglind Icey eru fallegt par.

Fyrirsætan og einn af eigendum framleiðslufyrirtækisins On the Rocks Production, Berglind Icey, er komin á fast með Erni Valdimar Kjartanssyni fjárfesti á fasteignamarkaðnum. 

Þau hnutu um hvort annað á nýársfagnaði og hafa verið óaðskiljanleg síðan þá. Það gustar af parinu hvert sem þau koma.

Berglind hefur frá unglingsaldri verið áberandi á Íslandi en hún hóf feril sinn sem fyrirsæta. Hún keppti til dæmis í Hawaiian Tropic-keppninni 1997 en þátttaka í þeirri keppni opnuuðu margar dyr. Fyrirsætustörfin leiddu hana til Hollywood þar sem hún lék í nokkrum bíómynd og vann þar að spennandi verkefnum. Í dag er hún á fullu að vinna fyrir framleiðslufyrirtækið en hún hefur einnig unnið töluvert í verkefnum tengdum jarðvarma. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál