Bandaríkin hafa sameinast um að opna á samtal um uppruna fólks og sögu í kjölfar þeirrar staðreyndar að börn hafa verið í haldi í flóttamannabúðum við landamæri landsins. Donald Trump breytti löggjöfinni í vikunni sem gerir það að verkum að þessi harða aðgerð stjórnvalda að taka börn af flóttamönnum verður dregin til baka.
Eftir situr sú staðreynd að talsvert margir eru innflytjendur í Bandaríkjunum og þau eiga sögu að segja um hversu erfitt var fyrir foreldra og afkomendur að koma til landsins með tvær hendur tómar. Þau eiga erfitt með að hugsa sér hvernig farið hefði fyrir þeim hefðu þau verið tekin af foreldrum sínum á þessum tíma.
Mikið af því fólki sem hefur verið án réttinda þegar kemur að landvist, hefur náð miklum árangri í lífinu í Bandaríkjunum. Sögurnar eru að finna á Instagram undir #familiesnotcages #webelongtogether #shareyourstory # keppfamiliestogether.
Fyrirsætan Christy Turlington segir sögu móður sinnar sem kom til Bandaríkjanna árið 1948 á flótta. Hún segir: „Ég get ekki ímyndað mér hvernig henni hefði liðið hefði hún verið tekin af foreldrum sínum á þessum tíma.“ Nicki Minaj tekur í sama streng og segir sína sögu.