Birkir Már ástfanginn upp fyrir haus

Birkir Már Sævarsson fagnar brúðkaupsafmæli í dag.
Birkir Már Sævarsson fagnar brúðkaupsafmæli í dag. AFP

Landsliðsmaðurinn Birkir Már Sævarsson og eiginkona hans Stefanía Sigurðardóttir fagna níu ára brúðkaupsafmæli í dag. Birkir Már deildi vel völdum myndum úr hjónabandinu á Instagram í tilefni dagsins. 

„Vonandi eigum við að minnsta kosti 60 ár eftir,“ skrifaði Birkir Már meðal annars og óskaði eiginkonu sinni til hamingju með brúðkaupsafmælið. Eins og sjá má á myndum knattspyrnumannsins klæddist Stefanía fallegum rauðum kjól á brúðkaupsdaginn. 

Birkir Már þykir harður í vörn íslenska landsliðsins en Stefanía er ekki síður hörð í horn að taka. Á meðan HM í knattspyrnu stóð yfir tjáði hún sig á Twitter þar sem hún gaf þeim ein­fald­lega putt­ann sem reyndu að klæm­ast á umræðunni um neikvæð áhrif eiginkvenna og fjölskyldna leikmanna á mótinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál