Á yfir 300 pör af skóm!

Jamie Chua er drottning samfélagsmiðlana. Hún leggur sig fram um …
Jamie Chua er drottning samfélagsmiðlana. Hún leggur sig fram um að lifa lúxus lífi og leggur línurnar í þeim efnum reglulega. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Jamie Chua er drottning samfélagsmiðlana. Hún er ríka stelpan sem á yfir 300 skópör í fataskápnum sínum sem er á stærð við meðalíbúð. Hún vann sem flugfreyja áður en hún varð svona vinsæl á samfélagsmiðlum.  Chua er reyndar 42 ára en lítur út fyrir að vera kornung. Myndirnar hennar á Instagram eru alveg hreint kostulegar. 

Chua er frá Singapúr. Hún er með tvær aðstoðarmanneskjur, önnur þeirra í fullu starfi við að taka myndir af henni.

Chua var í 15 ára hjónabandi með viðskiptajöfrinum Nurdian Cuaca. Hún hitti hann þegar hún var flugfreyja hjá Singapúr flugvélaginu einungis tvítug að aldri.

Skilnaður þeirra komst í fjölmiðla því hún þótti hafa náð góðum samningum, meðal annars með því að frysta eignirnar hans í samningaviðræðunum. 

Hún eyðir yfir milljón á mánuði í að líta vel út. Hún á eitt stærsta Hérmés-töskusafn í heimi, hún á yfir 300 pör af skóm og fataherbergið hennar er á stærð við meðalíbúð. Hún leggur sig fram um að lifa glamúrlífi sem kostulegt er að fylgjast með.






mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál