Black Eyed Peas-stjarnan Will.I.Am, eða William Adams, missti rúmlega 9 kíló með því að bæta svefninn og skipta yfir í plöntufæði. Þessu greindi tónlistarmaðurinn frá í viðtali við Arianna Huffington, sem heldur úti hlaðvarpinu The Thrive Global Podcast.
Will.I.Am var orðinn 95 kíló í fyrra og hafði bætt töluvert mikilli þyngd á sig yfir árin. Hann var ekki við góða heilsu, var með háan blóðþrýsting, bakflæði og stöðugt kvefaður. Á þeim tíma svaf hann í um tvo tíma á hverri nóttu.
„Ég fór að sofa um klukkan 5 á morgnana. Ég rökræddi við fólk og sagði „ég þarf bara svona tveggja tíma svefn á hverjum sólarhring,“ sagði Will.I.Am í viðtalinu. Svefnleysið gerði það að verkum að hann borðaði töluvert meira en hann þurfti og sótti í mikið unna matvöru.
Eftir að hann bætti svefninn hurfu einkennin sem hann hafði fundið fyrir. Hann ákvað einnig að skipta yfir í plöntufæði og mælir með því fyrir hvern sem vill bæta heilsuna. Hann tók kjöt, sykur og mikið unna matvöru út úr mataræði sínu.