Á bak við tjöldin í forsíðumyndatöku Beyoncé

Beyoncé á forsíðunni.
Beyoncé á forsíðunni. skjáskot

Í draumkenndu myndbandi af forsíðumyndatöku Beyoncé fyrir Vogue má sjá tónlistarkonuna gera sig tilbúna fyrir myndatökuna. Þar má einnig sjá börnin hennar, Blue Ivy og tvíburana Sir og Rumi, leika saman. Beyoncé hefur ekki deilt mörgum myndum af tvíburunum og er því gaman að sjá þau leika sér við stóru systur sína í myndbandinu. 

Beyoncé prýðir septemberútgáfu bandaríska Vogue í ár og voru myndirnar teknar af Tyler Mitchell. Hún kom að valinu á ljósmyndaranum, en hann er aðeins 23 ára gamall og fyrsti svarti ljósmyndarinn til að eiga heiðurinn af forsíðu bandaríska Vogue, sem hefur komið út í 126 ár.

Beyoncé veitti Vogue viðtal en vanalega veitir hún ekki viðtöl. Viðtalið er með sérstöku sniði því viðtalið er skrifaði í fyrstu persónu frá Beyoncé og er mjög persónulegt. Þar opnar hún sig um fæðingu tvíburanna, viðhorf sín til líkama síns og uppeldi barna sinna.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál