Skopmyndateiknarinn Halldór Baldursson og barnsmóðir hans, Hlíf Una Bárudóttir listamaður, gengu í hjónaband á laugardaginn.
Hressi predikarinn, Arnar Snæberg Jónsson frá Siðmennt, gaf brúðhjónin saman í sal Systra og maka í Síðumúlanum. Athöfnin var lífleg og skemmtileg og svo var slegið upp veislu í salnum og sá Áslaug Snorradóttir, matarlistamaður og ljósmyndari, um matarupplifun veislunnar.
Ljúflingsparið Alba E.H. Hough og Ásdís Gríma Jónsdóttir gerðu stórfenglega köku og svo sáu gestir og brúðhjón um að skemmta sér konunglega eins og sést á myndunum.
Smartland óskar þeim hjartanlega til hamingju með brúðkaupið.