Garner tekur ekki þátt í ruglinu

Rachel Zoe og Jennifer Garner á hátíðlegri opnun nýrrar verslunar …
Rachel Zoe og Jennifer Garner á hátíðlegri opnun nýrrar verslunar Zoe í Los Angeles. Ljósmynd/skjáskot Instagram

Jennifer Garner hefur verið að breytast að undanförnu þar sem hún virðist meira kjörnuð, náttúrulegri og tengdari sér en margar aðrar stjörnur í Hollywood um þessar mundir.

Hjónaband þeirra Ben Aflleck hefur staðið höllum fæti vegna meðal annars áfengisvandamála hans. En Garner virðist hafa tekið þann pól í hæðina að standa með sér og börnunum sínum um þessar mundir. Garner og Affleck fóru í kirkju saman á dögunum þegar hann hafði lokið 30 daga meðferð. Óvíst er með framhaldið en Garner virðist ekki taka sjúkdómi Affleck persónulega.

Hún er dugleg að rækta sig, sinna atvinnu sinni, fara í kirkju og elur á heiðarleika og sjálfsást eins og fréttir af henni að undanförnu sýna. 

Hún hefur sjaldan eða aldrei litið betur út og aðdáendur hennar eru sammála því að þessi nálgun hennar er fersk og sterk að margra mati.

Garner virðist eins langt frá Hollywood glamúr-lífinu og hægt er. Fatnaður hennar í opnun verslunar stílistans Rachel Zoe er sönnun þess. Garner mætti hress og falleg og bar af að margra mati fyrir útgeislun. Það er greinilegt að hún setur lífið sitt í forgang en ekki ímyndina og einlægnin á bak við það skilar sér alltaf margfalt til baka.

View this post on Instagram

Happy first day of autumn! 🍁🍂👩🏻‍🌾🚜 #soyouthinkyoucanfarm

A post shared by Jennifer Garner (@jennifer.garner) on Sep 22, 2018 at 3:53pm PDT



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál