Hafdís Jónsdóttir eða Dísa í World Class eins og hún er jafnan kölluð fer með lítið hlutverk í myndinni Undir halastjörnu.
„Þetta er nú bara smáhlutverk, tvær senur sem tóku ekki mikinn tíma. Það var haft samband við mig og ég spurð hvort ég væri til í að taka þetta að mér þar sem það hafði komið upp að ég væri sú týpa sem leitað væri að og ég sló til,“ segir Dísa sem leikur á móti Ingvari E. Sigurðssyni stórleikara.
„Ég er reyndar ekki búin að sjá myndina. Ég veit ekki hvort það sést í myndinni þegar ég kveð Ingvar en í þeirri senu hugsaði ég að ég væri að kveðja Bjössa minn,“ segir Dísa.
Þegar hún segir Bjössa minn á hún við eiginmann sinn, Björn Leifsson.