Sunna Elvíra lítur ekki í baksýnisspegilinn

Sunna Elvíra Þorkelsdóttir lögfræðingur.
Sunna Elvíra Þorkelsdóttir lögfræðingur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Sunna Elvíra Þorkelsdóttir lögfræðingur slasaðist í janúar þegar hún féll á milli hæða á heimili sínu á Spáni. Hún er í viðtali við tímarit Smartlands sem fylgir Morgunblaðinu á morgun. Þetta er í fyrsta skipti sem Smartland gefur út tímarit en vefurinn er á áttunda ári. 

Í viðtalinu í tímariti Smartlands segir Sunna Elvíra frá því hvernig líf hennar hefur verið síðustu mánuði. Hún skildi við eiginmann sinn, Sigurð Kristinsson, í vor og býr ein með dóttur sinni í sérútbúinni íbúð fyrir fatlaða. 

„Það lá ljóst fyrir að við yrðum að skilja, en þetta voru þung skref inn á skrifstofu sýslumanns því það er erfitt að skilja. Við vorum búin að vera saman í fimm ár og eigum dóttur saman.
Þetta voru ákveðin kaflaskil. Ég ákvað eiginlega fljótlega eftir slysið að ég yrði að setja sjálfa mig í fyrsta sæti, minn bata og mína endurhæfingu. Fyrir mitt leyti var betra fyrir mig að ganga
í gegnum þetta ein svona eftir á að hyggja,“ segir hún. 

Tímarit Smartlands fylgir Morgunblaðinu á morgun. Ágústa Eva Erlendsdóttir prýðir …
Tímarit Smartlands fylgir Morgunblaðinu á morgun. Ágústa Eva Erlendsdóttir prýðir forsíðuna en hún landaði þriðja stærsta hlutverkinu í nýrri HBO-seríu sem sýnd verður um allan heim. 300 leikkonur sóttust eftir hlutverkinu. Ljósmynd/Karl Lilliendahl
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál