Brynjar er ekki með kynlífsfíkn

Brynjar Níelsson alþingismaður er búinn að fá það vottað hjá …
Brynjar Níelsson alþingismaður er búinn að fá það vottað hjá eiginkonu sinni að hann er ekki með kynlífsfíkn. mbl.is/Hanna Andrésdóttir

Brynjar Níelsson lögmaður og alþingismaður sagði frá því rétt í þessu á Facebook-síðu sinni að hann væri hugsi yfir öllum fíknisjúkdómunum sem herja á fólk núna. 

Þeir sem þekkja Brynjar vita að hann er mikill húmoristi. Hann ákvað því að spyrja eiginkonu sína hvort hann væri með einhverja aðra fíkn en leiðindin, til dæmis kynlífsfíkn. 

Eiginkona hans, dómarinn Arnfríður Einarsdóttir, sagði að hann þyrfti ekki að hafa áhyggjur. Ef hann væri með kynlífsfíkn þá væri hann augljóslega á mjög góðum lyfjum. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál