Best geymda jólagjafaleyndarmálið

Dreymir þig um að gefa öllum sem þú þekkir eitthvað dásamlegt í jólagjöf en veist ekki alveg hvað það á að vera? Ef þú ert strand eða langar bara í andlega skemmtun þá er svarið hér. Við fyrstu er svolítið eins og fólk sé komið til Svíþjóðar en þar eru margar svipaðar krúttbúðir sem selja ilmkerti, sápur, hörhandklæði, leðursvuntur, falleg bollastell, lampa, risastór útikerti og viskastykki svo eitthvað sé nefnt. 

Það má því segja að verslunin mixmix Reykjavík sé eitt best geymda jólagjafaleyndarmálið í dag en hún er rekin í bílskúr við Langholtsveg. Auðvitað er hægt að fara og njóta allan ársins hring en á akkúrat á þessu augnabliki eru margir af bugast vegna jólagjafahugmyndaleysis og þurfa hjálp. 

Það fer ekki mikið fyrir búðinni þegar rennt er eftir götunni í bifreið og því ekki úr vegi að fara að leita að stæði þegar þú kemur að húsinu númer 62. 

Þegar inn er komið tekur heill heimur við og hvert sem litið er er eitthvað fallegt að sjá. Fagurkerar og neysludrifnir einstaklingar gætu fengið smá aukahjartaslag - svo margt sniðugt er að sjá. Allt í þessu rými er notað sem pláss fyrir dót. Inni á baði eru til dæmis baðvörur og í eldhúsinu, sem er opið inni í rýminu, eru bollastellum, uppþvottaburstum og öllu því helsta raðað upp og ægir öllu saman. Fólk með mikinn athyglisbrest verður að passa sig að missa ekki fókusinn þegar í búðina er komið. 

Í gamla daga var trésmíðaverkstæði á þessum stað og síðar verksmiðja Maxí Popp sem framleiddi popp fyrir öll bíóhús borgarinnar. 

Fyrir þá sem eru ráðþrota og að bugast í jólastressi þá eru nokkrar góðar jólagjafahugmyndir hér:

Fallegir bakkar sem þú gætir gefið matreiðsludrottningunni í fjölskyldunni.
Fallegir bakkar sem þú gætir gefið matreiðsludrottningunni í fjölskyldunni.
Leðursvuntur eru það svalasta sem hægt er að klæðast í …
Leðursvuntur eru það svalasta sem hægt er að klæðast í eldhúsinu. Leðursvunturnar kosta 23.900 kr.
Í mixmix Reykjavík er hægt að fá eldföst mót í …
Í mixmix Reykjavík er hægt að fá eldföst mót í öllum stærðum. Þau kosta frá 3.490 kr.
Hér er ekta svona karlajólagjöf. Hnífar í hulstri.
Hér er ekta svona karlajólagjöf. Hnífar í hulstri.
Í mixmix Reykjavík er hægt að fá sérlega heillandi matarstell.
Í mixmix Reykjavík er hægt að fá sérlega heillandi matarstell.
Þessi glös eru hátíðleg og koma í ýmsum gerðum.
Þessi glös eru hátíðleg og koma í ýmsum gerðum.
Leðursvunturnar geta líka komið að góðum notum við grillið.
Leðursvunturnar geta líka komið að góðum notum við grillið.
Jólatréskerti eru falleg á jólaborðið.
Jólatréskerti eru falleg á jólaborðið.
Í ár er allt köflótt. Hér eru falleg teppi sem …
Í ár er allt köflótt. Hér eru falleg teppi sem gera heimilið svolítið Ralph Lauren legt.
Í mixmix Reykjavík eru ilmkerti á góðu verði.
Í mixmix Reykjavík eru ilmkerti á góðu verði.
Þar eru líka allskonar skemmtileg kerti.
Þar eru líka allskonar skemmtileg kerti.
Það er gaman að búa til mat ef þú átt …
Það er gaman að búa til mat ef þú átt eldföst mót í mörgum stærðum eins og sést hér.
Þetta er árstíminn þar sem kerti og fallegir kertastjakar geta …
Þetta er árstíminn þar sem kerti og fallegir kertastjakar geta gert kraftaverk fyrir heimilið.
Stór útikerti eru ómissandi um jólin.
Stór útikerti eru ómissandi um jólin.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál