Skúli Mogensen forstjóri Wow air og kærasta hans, Gríma Björg Thorarensen innanhússhönnuður, geisluðu í brúðkaupi Jónu Vestfjörð Hannesdóttur og Hólmars Arnar Eyjólfssonar í gær. Brúðkaupið fór fram í Dómkirkjunni og var það sr. Hjálmar Jónsson sem gaf hjónin saman.
Mikið hefur mætt á Skúla undanfarnar vikur þar sem hann hefur lagt allt sem hann á í að bjarga rekstri Wow air. Skúli lætur þó aldrei neitt stoppa sig og heldur alltaf áfram sama hvað á dynur. Í gær leiddust þau Gríma fyrir utan Dómkirkjuna og geisluðu eins og sést á myndunum.