Brúðkaup Davíðs og Jóhönnu Guðrúnar

Davíð og Jóhanna Guðrún á brúðkaupsdaginn sinn.
Davíð og Jóhanna Guðrún á brúðkaupsdaginn sinn.

Söngkonan Jóhanna Guðrún Jónsdóttir giftist eiginmanni sínum, Davíð Sigurgeirssyni, hinn 21. september árið 2018. Brúðkaupið var sannkölluð tónlistarveisla þar sem hæfustu listamenn landsins, ásamt brúðhjónum, komu fram. 

„Við giftum okkur í Garðakirkju af því okkur fannst það rétti staðurinn fyrir viðburðinn. Vídalínskirkja kom einnig til greina, enda störfum við mikið í þeirri kirkju. Við hjónin erum kórstjórar hjá barna- og unglingakórnum ásamt því að vera með gospelkór Jóns Vídalíns. Eins erum við mikið beðin að syngja í þessum kirkjum, hvort heldur sem er í brúðkaupum eða jarðarförum,“ segir hún.

Jóhanna Guðrún á fallegar minningar úr brúðkaupinu sínu. Prestarnir Jóna Hrönn Bolladóttir og eiginmaður hennar Bjarni Karlsson gáfu þau saman. „Jóna Hrönn er enginn venjulegur prestur að mínu mati, í raun má segja það um þau bæði. Ég fylgist með hvernig þau vinna dag og nótt og er virkilega heppin að sjá þessa hlið á lífinu. Allt það fallega sem gerist innan kirkjunnar, en einnig það erfiða, þegar fjölskylda kveður vini og ættingja – stundum langt fyrir aldur fram.“

Jóhanna Guðrún segir æðislegt að starfa með börnum og unglingar séu einstakir líka. „Það er gaman að sjá hversu fljótt persónuleiki fólks kemur fram. Árangur barna í söng er mikill ef þau hafa áhuga og leggja sig fram. Það er bæði gefandi og lærdómsríkt að starfa innan kirkjunnar. Mín verkefni eru kannski vel skilgreind og auðframkvæmanleg, en sumt af því sem fram fer innan kirkjunnar er þannig að fólk þarf kærleika, skilning og stuðning.“

Hvernig var tónlistin í ykkar brúðkaupi?

„Við vorum með sannkallaða tónlistarveislu þar sem mikið af vinum okkar, fjölskyldu og kunningjum er í tónlistariðnaðinum. Davíð spilaði sjálfur á gítar þegar ég gekk inn kirkjugólfið. Hann spilaði ekki hinn hefðbundna brúðarmars, heldur lagið „Cavatina“ úr kvikmyndinni „Deer Hunter“. Það var ótrúlega rómantískt og þar sem hann er frábær gítarleikari þá langaði mig að hann myndi spila lagið sjálfur.“

Gaman að velja lögin saman

Hvað mælir þú með að fólk geri tengt tónlist í brúðkaupum?

„Í kirkjunni sjálfri finnst mér að tónlistin eigi að vera persónuleg og ekki valin úr fyrirframgefnum lögum, heldur eftir smekk og upplifun brúðhjónanna. Hvaða lag eiga þau saman? Hvaða lag fjallar um þau? Það finnst mér algjört lykilatriði og þannig vinn ég með brúðhjónum sjálf. Ég tók sem dæmi eitt sinn lag með „Foo Fighters“ í brúðkaupi. Framsetningin var einföld og tónlistaratriðið varð einstakt. Blíðlegur kassagítar og kvenrödd getur klætt lagið úr fötunum og komið því í brúðkaupsbúning.“

Hún er á því að persónuleg tónlist komi fólki á óvart og sé upplifun sem býr til sérstaka tengingu milli brúðhjóna og gesta þeirra á brúðkaupsdaginn. „Við buðum upp á „Thank You for the Music“ sem Stefanía Svavarsdóttir söng og tengdapabbi ásamt fleiri góðum vinum okkar úr tónlistaiðnaðinum spilaði undir. Eins vorum við með lagið „You've Got a Friend“ eftir Carole King, lagið tóku vinkonur mínar Elísabet Ormslev og Stefanía Svavarsdóttir saman. Þór Breiðfjörð tók lagið „Unchained Melody“ fyrir okkur. Eins sungu Eyrún Eðvaldsdóttir og Gospelkórinn lokalagið í kirkjunni sem var „Waiting for a Star to Fall“.

Ég átta mig á því að það geta ekki allir verið með svona tónlistaratriði á brúðkaupsdaginn, en ég held að allir geti sett sinn persónuleika í daginn með tónlistinni svo eitthvað sé nefnt.“

Var afslöppuð í undirbúningnum

Hvernig gekk að undirbúa brúðkaupið?

„Ég var roslalega afslöppuð og var ekkert að stressa mig á undirbúningnum. Ég vissi að hlutirnir myndu verða í lagi um leið og við vorum búin að bóka kirkjuna, prestana og tónlistarfólkið, ásamt því að panta mat, kjól, hár og förðun. Davíð pantaði daginn fyrir brúðkaupið sem dæmi myndakassa, sem var frábært. Honum datt þetta bara allt í einu í hug og við slógum til. Það jafnast ekkert á við myndirnar af öllu fólkinu sem skemmti sér frábærlega vel með okkur þennan dag og við eigum myndir sem geyma þessar minningar sem er okkur svo dýrmætt.“

Hljómsveitin Albatross spilaði fyrir gesti í brúðkaupsveislunni. Eyþór Ingi, Ívar Daníels, Böddi Reynis, Friðrik Ómar og brúðurin og brúðguminn stigu öll á sviðið og skemmtu gestum þetta kvöld.

Hvað matinn varðar segist Jóhanna Guðrún ekki geta hætt að mæla með Kjötkompaníi og Sætum syndum. „Við fengum forréttaplatta frá Kjötkompaníi og síðan buðum við upp á kalkún og lambakjöt með öllu tilheyrandi. Þórunn, sem starfar í kirkjunni, gerði matinn fyrir okkur. Hún Eva í Sætum syndum aðstoðaði mig við að gera æðislega brúðarköku sem endaði á því að vera frekar einföld og klassísk. Eva er einstök; hún gefur manni tíma og hefur ótrúlega þolinmæði þótt maður skipti nokkrum sinnum um skoðun. Við vorum með makrónuturna í fallegum pastellitum sem ég mæli einnig með.“

Nú eruð þið hjónin mikið saman á degi hverjum þar sem þið starfið saman. Hvernig er það?

„Við erum ótrúlega góðir vinir og náum vel saman. Okkur hefur aldrei þótt erfitt að vera mikið saman og það hentar okkur vel. Við erum samrýnd fjölskylda og hlökkum til þess að eignast annað barnið okkar saman og halda áfram að njóta alls sem lífið færir okkur.“

Helgi Ómarsson
Helgi Ómarsson
Helgi Ómarsson
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál