Björgólfur gaf Sigurði mótorhjól

Björgólfur Thor Björgólfsson gaf Sigurði Ólafssyni mótorhjól í afmælisgjöf.
Björgólfur Thor Björgólfsson gaf Sigurði Ólafssyni mótorhjól í afmælisgjöf.

Björgólfur Thor Björgólfsson fjárfestir kann að gleðja vini sína og ættingja. Einn af hans bestu félögum, Sigurður Ólafsson, fagnaði 50 ára afmæli sínu á föstudaginn var og fékk stórkostlega afmælisgjöf frá Björgólfi Thor. 

Sigurður er framkvæmdastjóri Novator sem er í eigu Björgólfs Thors og hefur verið lengi í því starfi eða síðan 2006. 

Sigurður er mikill stemningsmaður og því var öllu tjaldað til á Listasafni Reykjavíkur þegar Sigurður hélt upp á 50 árin. Vinir hans og ættingjar færðu honum fallegar gjafir en sú gjöf sem ekki fór framhjá neinum var afmælisgjöfin frá Björgólfi Thor. 

Hann færði sínu gamla og góða vini forláta mótorhjól og bætti um betur og keyrði það sjálfur inn í veisluna við mikinn fögnuð viðstaddra. Ef Björgólfur Thor hefur einhvern tímann verið greifi götunnar þá var það þegar hann keyrði hjólið inn í salinn. 

Hjónin Hildur Hafstein og Sigurður Ólafsson.
Hjónin Hildur Hafstein og Sigurður Ólafsson. mbl.is/Kristinn Magnússon
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál