Hvers vegna hatar Mendes sjálfur?

Eva Mendes þykir ein fallegasta leikkona veraldar. Hún á tvö …
Eva Mendes þykir ein fallegasta leikkona veraldar. Hún á tvö börn með unnusta sínum Ryan Gosling.

Eva Mendes er ein af þeim leikkonum sem er lítið fyrir sviðsljósið utan vinnu. Eftir að hún eignaðist dætur sínar tvær með leikaranum Ryan Gosling nánast hvarf hún úr fjölmiðlum þótt undanfarið sé farið að bera aðeins meira á henni en oft áður.

Það ríkir mikil leynd yfir sambandi þeirra en Mendes (45 ára) hefur verið í sambandi við Gosling (38 ára) frá árinu 2011 þegar þau hittust við gerð kvikmyndarinnar The Place Beyond the Pines. Þau eru ekki gift en eiga dæturnar Esmeralda Amada Gosling sem fædd er árið 2014 og Amada Lee Gosling sem fædd er árið 2016.

Mendes er að prófa sig áfram á samfélagsmiðlum en birtir aldrei myndir af börnum sínum eða unnustanum. Hún viðurkenndi í nýlegum spjallþætti The Talk Show að hún sé lítið fyrir samfélagsmiðla og almenna athygli utan vinnunnar og að í raun hati hún að taka sjálfur sem hún þó gerir fyrir fylgjendur sína öðru hverju.

Hún segist eiga erfitt með að taka ljósmynd af sér sjálfri því henni þyki svo asnalegt að halda símanum fyrir framan sig og stilla sér upp. 


Hún er dugleg að birta ljósmyndir af sér í fatnaði sem hún hannar sjálf undir eigin nafni. 

Mendes hefur verið leikkona lengi og hefur látið þau orð falla að börn hafi aldri verið á dagskrá hjá henni fyrr en hún kynntist Gosling. 

„Mig langaði aldrei í börn þar til ég hitti Gosling. Þá skildi ég hvernig hlutirnir virka. Mann langar kannski ekki í börn, en mann langar í börn með einhverjum sem maður elskar. Ég held að þannig virki hlutirnir.“

„Ég held að alla langi í börn með ykkur Gosling. Jafnvel fleiri sem vildu börn með þér Eva,“ segir einn þáttastjórnenda og hlær. 

Ryan Gosling og Eva Mendes.
Ryan Gosling og Eva Mendes. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Eva Mendez og Ryan Gosling hafa verið par frá því …
Eva Mendez og Ryan Gosling hafa verið par frá því árið 2011. Ljósmynd/skjáskot Instagram
Eva Mendes og Ryan Gosling.
Eva Mendes og Ryan Gosling. mbl.is/AFP




mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál