Stjörnur sem eiga óþekkt tvíburasystkini

Gisele Bündchen með tvíburasystur sinni.
Gisele Bündchen með tvíburasystur sinni. skjáskot/Instagram

Stjörnurnar í Hollywood eru ekki bara þekktar fyrir að eignast tvíbura þar sem margar af þeim eru tvíburar. Oftast eru ekki báðir tvíburarnir frægir eins og í tilviki Mary-Kate og Ashley Olsen. Ein frægasta fyrirsæta heims, Gisele Bündchen, fagnaði til að mynda 39 ára afmæli á dögunum rétt eins og óþekkt tvíburasystir hennar sem heitir Rafaela.  

Rami Malek úr Bohemian Rhapsody á tvíburabróðirinn Sami sem er kennari í Los Angeles. 

Rami Malek.
Rami Malek. mbl.is/AFP

Leikarinn Ashton Kutcher á tvíburabróðir að nafni Michael. 

Ashton Kutcher.
Ashton Kutcher. mbl.is/AFP

Orange is the New Black-stjarnan Laverne Cox á tvíburabróður sem er tónlistarmaður og kallar sig M Lamar. 

Laverne Cox.
Laverne Cox. mbl.is/AFP

Kiefer Sutherland er tvíburi en systir hans Rachel Sutherland vinnur á bak við tjöldin í kvikmyndageiranum. 

Kiefer Sutherland.
Kiefer Sutherland. mbl.is/FRED PROUSER

Leikarinn Vin Diesel á tvíburabróðir sem heitir Paul Vinvcent og lítur ekkert út eins og hasarmyndahetjan. 

Vin Diesel.
Vin Diesel. mbl.is/AFP

Leikkonan Scarlett Johansson á tvíburabróðir að nafni Hunter Johansson. Hunter hefur látið sjá sig á rauða dreglinum með systur sinni. Hann vinnur að góðgerðarverkefnum auk þess sem hann vann við framboð Barack Obama árið 2008. 

Scarlett Johansson.
Scarlett Johansson. mbl.is/AFP

Bond-stúlkan fyrrverandi Eva Green á tvíburasystir að nafni Joy. Tvíburasystirin hefur meiri áhuga á hestum en leiklist. 

Eva Green.
Eva Green. mbl.is/AFP



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál