Hadid sýndi magavöðvana

Fyrirsætan Bella Hadid mætti á MTV tónlistarverðlaunin í efnislitlum kjól …
Fyrirsætan Bella Hadid mætti á MTV tónlistarverðlaunin í efnislitlum kjól sem sýndi magann. mbl.is/AFP

Fyrirsætan Bella Hadid mætti í stuttum kjól með beran magann á MTV verðlaunin í gær. Kjólinn sem var í ljósum lit, var efnislítill, en fór fallega með nýja ljósa hárlitnum sem hún er að sýna í fyrsta skiptið á rauða dreglinum.  Hún bar hárið í háu tagli sem er greinilega það sem koma skal fyrir veturinn. Hadid systirin var með Jimmy Choo tösku og í húðlituðum skóm við. 

Bella Hadid þykir ein eftirsóknaverðasta fyrirsæta veraldar um þessar mundir. …
Bella Hadid þykir ein eftirsóknaverðasta fyrirsæta veraldar um þessar mundir. Hún mætti með ljósan hárlit á MTV verðlaunin. mbl.is/AFP

Bella Hadid mætti með systur sinni Gigi Hadid á verðlaunahátíðina sem virðist snúast meira um að vera skapandi í klæðaburði en einungis tónlistina. Systurnar voru klæddar í stíl og má segja að þær hafi verið frekar lágstemmdar í klæðaburði miðað við aðra gesti sem voru með allskonar litað hár og í djörfum fatnaði. 

Bella Hadid er ekki feimin þegar kemur að því að …
Bella Hadid er ekki feimin þegar kemur að því að sýna líkamann. mbl.is/AFP
Fyrirsæturnar Gigi Hadid og Bella Hadid eru samrýndar systur sem …
Fyrirsæturnar Gigi Hadid og Bella Hadid eru samrýndar systur sem mættu í stíl á MTV verðlaunin. mbl.is/AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál